Þjóðleikhúsið og Bóksala stúdenta hafa ákveðið að halda áfram að bjóða stúdentum og starfsfólki H.Í. einstakt miðaverð á valdar sýningar í viku hverri. Miðarnir, sem eru eingöngu seldir í Bóksölu stúdenta, kosta aðeins kr. 1.800 stk. og kr. 1.250 á barnasýningar í Kúlunni.
Um er að ræða 5 - 30 miða á hverja sýningu. Í byrjun viku er auglýst við inngang Bóksölu stúdenta og á heimasíðu FS hvaða sýningar og hve margir miðar eru í boði þá vikuna. Hver og einn getur keypt að hámarki fjóra miða í einu. Þegar greitt er fyrir miðana í Bóksölunni fáið þið kvittun sem afhenda þarf í miðasölu Þjóðleikhússins til að fá útprentaða miða. Þá fyrst ræðst hvar þið sitjið í salnum þannig að því fyrr sem þið sækið miðana, því betri sæti fáið þið.
Við vonum að sem flestir geti nýtt sér þetta glæsilega tilboð og notið þess sem í boði er í Þjóðleikhúsinu. Fylgist vel með framboði á miðum í Bóksölunni og á heimasíðunni www.fs.is í byrjun hverrar viku og munið, fyrstur kemur fyrstur fær!
Tilboð vikunnar 20. – 26. september:
Íslandsklukkan fös. 24/9 kl. 19:00 4 sæti á 1.800 kr.
Íslandsklukkan lau. 25/9 kl. 19:00 6 sæti á 1.800 kr.
Íslandsklukkan sun. 26/9 kl. 15:00 6 sæti á 1.800 kr.
Hænuungarnir fim. 23/9 kl. 20:00 4 sæti á 1.800 kr.
Hænuungarnir fös. 24/9 kl. 20:00 2 sæti á 1.800 kr.
Hænuungarnir lau. 25/9 kl. 20:00 4 sæti á 1.800 kr.
Hænuungarnir sun.26/9 kl. 20:00 4 sæti á 1.800 kr.
Fíasól lau. 25/9 kl. 13:00 4 sæti á 1.250 kr.
Fíasól sun. 26/9 kl. 15:00 4 sæti á 1.250 kr.
