Háskóli Íslands hefur sett sér það markmið að vera ávallt í fararbroddi í jafnréttismálum, það er því skólanum metnaðarefni að hlúa vel að málaflokknum innan skólans og ennfremur að þróa sérþekkingu á sviði jafnréttismála til gagns fyrir samfélagið í heild. Til þess að jafnrétti verði að veruleika er nauðsynlegt að efla fræðslu um jafnréttismál og auka kynjavitund samfélagsins. Brýnt er að fjölga konum í stjórnunarstöðum og stjórnmálum og jafna kynjahlutfall í starfsgreinum sem nú eru mjög kynskiptar.
Háskóli Íslands leggur áherslu á lýðræðisleg vinnubrögð og að jafnréttis sé gætt á öllum sviðum starfseminnar. Háskólinn er vettvangur vísinda og rannsókna og það starf sem þar er unnið þarf að endurspegla fjölbreytni vísindasamfélagsins til nýtast samfélaginu öllu og standast alþjóðlegan samanburð. Þannig er brýnt að bæði karlar og konur hafi jafnan aðgang að menntun, framgangi, rannsóknum og fjármagni.
Jafnréttisstefna HÍ byggist á jafnréttisáætlun skólans, sem tekur mið af jafnrétti kvenna og karla, stefnu í málefnum fatlaðra og stefnu gegn mismunun, þar sem kveðið er á um alla hópa, sbr. 65. gr. stjórnarskrárinnar.

