Starfssvið jafnréttisnefndar nær til jafnréttismála í víðum skilningi, sbr. 65. grein stjórnarskrárinnar og ber henni að hafa gildandi lög um jafna stöðu kvenna og karla að leiðarljósi. Eitt af sex grunngildum í stefnu Háskóla Íslands 2006 – 2011 er að Háskóli Íslands leggi áherslu á lýðræðisleg vinnubrögð og að jafnréttis verði gætt á öllum sviðum starfseminnar.
Meginhlutverk jafnréttisnefndar er að vera háskólaráði til ráðgjafar um jafnréttismál í víðum skilningi. Nefndinni er þannig ætlað að veita ráðgjöf sem stuðlar að jafnrétti og spornar gegn mismunun innan háskólasamfélagsins hvort sem er á grundvelli kynferðis, fötlunar, kynhneigðar, þjóðernis, uppruna, litarháttar, trúarbragða og stöðu að öðru leyti. Miðað er við að jafnvægi ríki á milli áhrifa kvenna og karla innan Háskólans í kennslu, rannsóknum og stjórnun og að rödd fólks sem tilheyrir minnihluta hópum innan Háskólans heyrist og að það eigi jafn greiðan aðgang að gæðum háskólasamfélagsins og aðrir háskólaborgarar.
