Háskóli Íslands student.is

Stúdent.is

Stúdent.is
Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Dröfn Vilhjálmsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði

Er óvirkur félagi.

Þórdís Steinarsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Margrét Svava Jónsdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku.

Já, örlítið.

Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Maya Staub, þýska.

Nei.

Nökkvi Jarl Bjarnason, japanska og bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Árni Jóhannsson, bókasafns- og upplýsingafræði.

Er skráður.


Jafnréttisstofa

Printer-friendly version

Jafnréttisstofa var opnuð á Akureyri í september 2000. Hún annast stjórnsýslu á sviði jafnréttismála á Íslandi í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008 <1.6.1.1> og heyrir undir yfirstjórn félagsmálaráðherra. Hlutverk Jafnréttisstofu er skilgreint í 4. grein jafnréttislaganna.

Helstu verkefni stofunnar eru söfnun og miðlun upplýsinga um jafnrétti kynjanna, fræðsla og ráðgjöf til einstaklinga, félaga, fyrirtækja, stofnana og stjórnvalda á öllum stigum, auk þróunarstarfs, rannsókna og eftirlits með lögunum.

Hlutverk Jafnréttisstofu er að stuðla að því að markmið laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla náist ásamt því að hafa eftirlit með framkvæmd laganna. Þegar ætla má að ákvæði laganna hafi verið brotin skal framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu senda rökstudd tilmæli til hlutaðeigandi þar sem hvatt er til að ákvæði laganna verði virt. Jafnréttisstofa veitir jafnframt ráðgjöf við úrlausn málsins.

Starfsmenn Jafnréttisstofu eru jafnréttisfulltrúum ráðuneyta til ráðgjafar um störf þeirra á sviði jafnréttismála, meðal annars um samþættingu jafnréttissjónarmiða á verksviði viðkomandi ráðuneytis. Þeir eru ennfremur jafnréttisnefndum sveitarfélaga til ráðgjafar um málefni er varða jafnrétti kvenna og karla, þar á meðal um samþættingu jafnréttissjónarmiða við ákvörðunartöku hjá sveitarfélaginu og sérstakar aðgerðir sem ætlaðar eru til að tryggja jafnrétti kynjanna innan sveitarfélagsins.

Vefsíða Jafnréttisstofu 

 

Viðburðir

Tinktúra í nærmynd

Hákon kennari er lukkudýrið okkar!

fleiri nemendafélög

Notkun á facebook við kennslu lofar góðu

,,Á facebook eru kennarar og nemendur jafningjar" sagði Silja Bára Ó...