Femínistafélag Íslands er umræðuvettvangur og baráttutæki íslenskra femínista. Félagið er frjáls og óháður vettvangur sem hefur það að markmiði að efla gagnrýna og femíníska umræðu á öllum sviðum þjóðlífsins.
- Jafnrétti í skólum. Verkefni sem miðar að því að auka og efla jafnréttis- og kynjasjónarmið í skólastarfi, þ.e. í leikskólum og grunnskólum.
- Jafnréttisráð skal starfa í nánum tengslum við Jafnréttisstofu og vera félags- og tryggingamálaráðherra og framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu til ráðgjafar við faglega stefnumótun í málum er tengjast jafnrétti kynjanna.
- Kvennaslóðir Kvennagagnabankinn kvennaslóðir inniheldur upplýsingar um kvensérfræðinga á ýmsum sviðum. Markmið kvennaslóða er að gera þekkingu og hæfni kvenna sýnilega og aðgengilega.
- Kvenréttindafélag Íslands vinnur að því að bæta réttindi kvenna. Félagið var stofnað árið 1907 á heimili Bríetar Bjarnhéðinsdóttur og var hún fyrsti formaður félagsins og gengdi þeirri stöðu í 20 ár. Markmið félagsins við stofnun var að starfa að því að íslenskar konur fengju fullt stjórnmálajafnrétti á við karlmenn, kosningarétt, kjörgengi svo og embættisgengi og rétt til atvinnu með sömu skilyrðum og karlmenn.
- Kærunefnd jafnréttismála. Verkefni kærunefndar jafnréttismála er að taka erindi til meðferðar og kveða upp skriflegan úrskurð um hvort ákvæði laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla <1.6.1.1> hafa verið brotin. Niðurstöður kærunefndar sæta ekki kæru til æðra stjórnvalds.
- Norrænt jafnréttissamstarf. Markmiðið með norrænu jafnréttissamstarfi er að veita einstaklingum af báðum kynjum aukin tækifæri og réttindi í samfélaginu.
- Unifem á Íslandi UNIFEM fer með umboð Sameinuðu Þjóðanna til að styðja verkefni sem vinna að bættri stöðu kvenna í samræmi við alþjóðleg markmið. UNIFEM leggur áherslu á að konur séu virkir þátttakendur á öllum stigum stefnumótunar í þróunarsamvinnu aðildarríkja SÞ og þjónar því hlutverki að vera brautryðjandi á sviði jafnréttismála í alþjóðlegri þróunasamvinnu SÞ.

