Samtökin '78 eru hagsmuna- og baráttusamtök samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgenders fólks á Íslandi. Markmið félagsins er að lesbíur, hommar, tvíkynhneigðir og transgender fólk verði sýnilegt og viðurkennt og njóti fyllstu réttinda í íslensku samfélagi.
Samtökin ´78 reka menningar- og þjónustumiðstöð á Laugavegi 3 í Reykjavík, 4. hæð.
Þar er jafnframt rekið vandað almenningsbókasafn, hið eina sinnar tegundar á Íslandi sem safnar sérstaklega samkynhneigðu og tvíkynhneigðu efni. Í Regnbogasal menningarmiðstöðvarinnar er opið hús á mánudags- og fimmtudagskvöldum. Þar er fjölbreytt dagskrá á boðstólum yfir veturinn, fyrirlestrar, upplestrar, tónleikar og myndlistarsýningar. Á vettvangi félagins sameinast fólk í margvíslegum starfshópum um hugðarefni sín, áhugamál og baráttumál.
Allir þeir sem styðja mannréttindabaráttu lesbía og homma, tvíkynhneigðra og transgender fólks, og markmið Samtakanna ´78 geta gerst félagar.







