
Hlutverk Náms- og starfsráðgjafar Háskóla Íslands er að aðstoða þá sem þurfa stuðning á meðan á námi stendur. Stúdent þarf að leggja til greiningu þar sem fram kemur hvað hamli honum í námi og í framhaldi af því gera náms- og starfsráðgjafi og stúdent skriflegt samkomulag um til hvaða úrræða skuli gripið. Náms- og starfsráðgjöf ber ábyrgð á að fylgja samkomulaginu eftir í samvinnu við starfsmenn skólans. Þar sem margir leggja hönd á plóg er brýnt að stúdentar sem óska eftir úrræðum leiti til Náms- og starfsráðgjafar um leið og ákvörðun um skólavist er tekin.
Ráðgjafar NSHÍ leggja ríka áherslu á að nemendur tileinki sér sem árangursríkust vinnubrögð. Í byrjun náms er því sérstök áhersla lögð á námstækni og vinnulag sem síðan er fylgt eftir með öðrum úrræðum eftir því sem hentar hverjum og einum.
Úrræði geta m.a. verið:
- stuðningur og eftirfylgni ráðgjafa NSHÍ
- táknmálstúlkun
- rittúlkun
- færanlegur tónmöskvi
- glósuvinur
- yfirlesari sem fer yfir íslenskan texta í ritgerðum og verkefnum
- lengdur próftími
- leiðbeinandi/stuðningsviðtöl
- námskeið NSHÍ táknmálstúlkuð
- breitt prófform, munnlegt próf að loknu því skriflega (í samráði við kennara)
- fræðsla fyrir nemendur sem stunda nám með heyrnarlausum
- fræðsla fyrir kennara sem kenna heyrnarlausum
- túlkaðir viðtalstímar við kennara
- túlkun í hópvinnu
- túlkun á viðburðum á vegum HÍ
- MSN þar sem táknmálstalandi geta notað vefmyndavél (webcam) til að koma með fyrirspurnir, panta tíma hjá náms- og starfsráðgjafa, tala við túlk o.s.frv. hitulkur@hotmail.com
Starf og hlutverk táknmálstúlks
- Markmið með túlkun er að miðla upplýsingum milli tveggja mála og menningarheima.
- Túlkur er bundinn þagnarskyldu um allt sem fram fer í aðstæðunum.
- Túlkur skal ekki koma með athugasemdir, ráðleggingar eða bæta við neinu frá eigin brjósti.
- Táknmálstúlkun krefst mikillar einbeitingar
Atriði sem gott er að hafa í huga:
- Reynið að láta sem túlkurinn sé ekki á staðnum, forðist að ávarpa hann í túlkaaðstæðunum.
- Horfið á þann heyrnarlausa, ekki á túlkinn.
- Talið beint við þann heyrnarlausa og forðist setningar eins og “viltu segja honum…”, “viltu spyrja hann…”.
- Á umræðufundum er gott að hafa fundarstjóra sem stjórnar því að einn tali í einu. Túlkur getur ekki túlkað þegar margir tala á sama tíma.
- Hafa góða lýsingu.
- Túlkurinn er nokkrum sekúndum á eftir þeim sem talar.
- Endilega notið tækifærið og spjallið við þann heyrnarlausa þegar túlkur er á staðnum. Túlkar eru til taks ekki síður fyrir ykkur.
- Ekki vera feimin við að bjóða heyrnarlausa nemendanum að taka þátt í umræðu um námið og námsefnið, t.d. ef nemendur hittast til að undirbúa sig saman fyrir próf. Hægt er að fá túlk við þær aðstæður líka.
Í hópvinnu
- Munið að túlkurinn þarf að heyra allt sem sagt er í hópnum til að geta túlkað það.
- Reynið að stýra umræðum þannig að aðeins einn tali í einu.
- Heyrnarlausir eiga erfitt með að taka niður punkta eða vera ritarar í hópvinnu því þeir þurfa að horfa á túlkinn. Þess vegna væri gott ef einhver væri tilbúinn að sýna honum það sem var tekið niður þannig að hann geti skrifað niður eftir hópvinnuna eða ljósritað.
Áhugaverðar slóðir:
