Háskóli Íslands student.is

Stúdentaráð

Stúdentaráð

Hvað finnst þér best við íslenska sumarið?

Maddalena Tovazzi á 2. ári í ensku: Ætli það sé ekki hvað sumarið er bjart. Mér líkar líka vel við veðrið hérna, það er ekki of heitt.
Auður Kamma Einarsdóttir starfsmaður í Háskóla Íslands: Það er frekar hressandi veður hérna á Íslandi! Það er samt ansi gaman hvað sumarið er bjart, ég verð að segja það.
Freyr Björnsson á 3. ári í félagsfræði: Íslenska sumarið er svo passlegt.

Ætlar þú að kíkja við rannsóknarskýrslu ráðstefnu HÍ?

Eva Eiríksdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei, er í prófum
Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei því miður kemst ég ekki vegna prófum.
Juan Serrano mastersnemi í íslensku bókmenntafræði: Nei ég ætla ekki að fara, ég er of upptekin, en mér finnst þetta rosalega áhugavert efni.

Printer-friendly version

Menntavitinn

Menntavitinn er afrakstur samvinnu íslensku stúdenta- og námsmannahreyfinganna og velunnara þeirra. Um er að ræða 60 kílóa skúlptúr eftir Svölu Ragnarsdóttur myndlistakonu úr LHÍ. Vitinn verður afhjúpaður við hátíðlega athöfn á hátíðisdegi stúdenta 1. desember 2008. Dagskrá er hér.

Tilgangurinn með menntavitanum er að vekja stjórnmálafólk til umhugsunar um mikilvægi menntunar og hagi stúdenta og námsmanna á ólgutímum sem þessum. Vitinn fær að skína á Austurvellinum í fáeina daga en verður síðan færður milli menntastofnana landsins. Hliðar menntavitans eru 8 og á hverja þeirra verður skrifuð ein ósk stúdenta og námsmanna til ráðamanna.

Óskirnar eru eftirfarandi:

1. Að hlúð verði áfram að menntakerfi þjóðarinnar og að þjónustustig
háskóla og gæði kennslu verði ekki skert þegar aukinn fjöldi námsmanna
sækir nám sitt þangað.

2. Að þjónustustig Lánasjóðs íslenskra námsmanna verði ekki skert og að
sjóðurinn haldi áfram að tryggja framfærslu námsmanna á meðan á námi
stendur skv. 1. grein laga Alþingis um LÍN.

3. Að mánaðarlegar greiðslur verði teknar upp á vegum LÍN til þess að
stúdentar þurfi ekki að fá yfirdráttarlán frá bönkunum á tæplega 20%
vöxtum fyrir eftirágreiddu láni úr sjóðnum.

4. Að ríkið og LÍN endurskoði grunnframfærslu og reikni hana út miðað við
raunverulegt verðlag nauðþurfta í þjóðfélaginu. Núverandi grunnframfærsla
LÍN er ekki nægilega há til að stúdentar geti séð sér farborða með henni einni saman. Þeir hafa þurft að vinna með námi og leggja fyrir sumarlaun til að ná endum saman. Kúvending á vinnumarkaði hefur gjörbreytt tekjumöguleikum stúdenta með námi og að sumri sem nauðsynlegt er að bregðast við.

5. Að háskólar á landinu taki upp námskeið og kennslu yfir sumartímann
fyrir þá stúdenta sem fá ekki vinnu. Að öðrum kostum neyðast atvinnulausir
stúdentar til þess að sækja um atvinnuleysisbætur frá ríkinu.

6. Að efla og styrkja Nýsköpunarsjóð námsmanna og sporna þannig við auknu
atvinnuleysi og ýta undir framtakssemi námsmanna.

7. Að ríkisstjórn og sveitarfélög styðji rækilega við uppbyggingu nýrra
stúdentagarða og efni þá samninga sem þegar hafa verið undirritaðir.
Fleiri hundruð stúdenta bíða eftir stúdentahúsnæði og þeim mun fjölga þar
sem æ fleiri námsmenn sjá fram á mikla fjárhags- og greiðsluörðugleika.

8. Að stjórnvöld taki höndum saman við aðra Íslendinga við að byggja upp
samfélag grundvallað á þekkingu, jafnrétti, félagslegu réttlæti og
manngildi.

Námsmannahreyfingarnar sem að verkefninu standa eru:

  • Stúdentaráð Háskóla Íslands,
  • Stúdentaráð Háskólans í Reykjavík,
  • Stúdentaráð Menntavísindasviðs
  • Félag stúdenta við Háskólann á Akureyri,
  • Listaháskóli Íslands,
  • Stúdentafélag Háskólans á Hólum,
  • Samband íslenskra námsmanna erlendis,
  • Samband íslenskra framhaldsskólanema og Hagsmunafélag íslenskra framhaldsskólanema.

Fyrir utan sameiginlegar kröfur námsmanna leggur Stúdentaráð Háskóla Íslands sérstaka áherslu á eftirfarandi punkta:

-Að ríkisstjórn og borgaryfirvöld hlúi rækilega að stofnunum og fyrirtækjum sem veita stúdentum grunnþjónustu meðan þeir stunda nám. Búi þannig um hnútana að skattaumhverfi þeirra sé þægilegt og komi þannig vel við stúdenta. Meðal grunnþjónustu er átt við íbúðaleigu, barnapláss á leikskólum, mat og námsbækur.

 

Bréf til stjórnvalda í heild sinni:

14. nóvember 2008

Námsmenn taka höndum saman

Undirritaðar námsmannahreyfingar á Íslandi óska eftir fundi með menntamálanefnd Alþingis til þess að ræða alvarlega stöðu íslenskra námsmanna og fá svör við neðangreindum atriðum.

Á óvissutímum eru uppi ólík sjónarmið um hvaða aðgerðir ráðamenn landsins skuli grípa til þegar kemur að stefnumótun þjóðarinnar til framtíðar og hvernig megi leiða þjóðina úr þeim fjárhagslegu ógöngum sem nú blasa við. Það gefur augaleið að ákvarðanir ráðamanna næstu daga og vikur koma til með að hafa bein áhrif á framtíð okkar námsmanna sem og landsmanna allra.

Undirritaðir fulltrúar námsmannahreyfinga á Íslandi hafa áhyggjur af því að framtíðarhagur og velferð umbjóðenda sinna gleymist í rokinu þannig að þeim verði ekki best borgið í íslensku samfélagi. Ungt fólk og stúdentar neyðist því til að flytja búferlum til annarra landa sem bjóða upp á betri kosti en Ísland en eins og skoðanakannanir og fjölmiðlar hafa sýnt er sú þróun þegar í farveginum. Námsumhverfi og menntakerfi á Íslandi verður að vera tryggt svo námsmenn geti með góðu móti búið hér, annars er hætt við því að stór hluti sjái hag sinn í brottflutningi til annarra landa þar sem öryggi á atvinnumarkaði og í samfélagi er meira en hérlendis. Námsmenn og ungt fólk er sá hópur þjóðarinnar sem á hvað auðveldast með að flytja á erlendar slóðir til frambúðar en á sama tíma hópur sem ráðamenn ættu að gera hvað mest til þess að halda innan landsteinanna.   

Til að efla hagvöxt og koma á stöðugleika í samfélagi er algjört grundvallaratriði að menntunarstig landsins haldist hátt og fari stigvaxandi. Það er lykilatriði að nægt framboð sé af ungu og menntuðu fólki úti á vinnumarkaði svo það geti lagt þekkingu sína, menntun og nýsköpun á vogarskálar við uppbyggingu þjóðfélagsins á nýjan leik.

Samstaða ríkir meðal námsmanna og beiðnir okkar beinast til stjórnvalda. Við óskum eftir skýrum svörum og stefnu um málefni námsmanna landsins þar sem framtíð okkar er óviss. Óskir okkar varða grunnstoðir- og þarfir námsmanna þ.e. Lánasjóð íslenskra námsmanna, háskóla landsins, atvinnumöguleika ungs fólks og húsnæði.

Óskirnar eru eftirfarandi:

1. Við óskum þess að hlúið verði áfram að menntakerfi þjóðarinnar og að þjónustustig háskóla og gæði kennslu verði ekki skert þegar aukinn fjöldi námsmanna sækir nám sitt þangað.

2. Við óskum þess að þjónustustig Lánasjóðs íslenskra námsmanna verði ekki skert og að sjóðurinn haldi áfram að tryggja framfærslu námsmanna á meðan á námi stendur skv. 1. grein laga Alþingis um LÍN.

3. Við óskum þess að mánaðarlegar greiðslur verði teknar upp á vegum LÍN til þess að stúdentar þurfi ekki að fá yfirdráttarlán frá bönkunum á tæplega 20% vöxtum fyrir eftirágreiddu láni úr sjóðnum.

4. Við óskum þess að ríkið og LÍN endurskoði grunnframfærslu og reikni hana út miðað við raunverulegt verðlag nauðþurfta í þjóðfélaginu. Núverandi grunnframfærsla LÍN er ekki nægilega há til að stúdentar geti séð sér farborða með henni einni saman. Þeir hafa þurft að vinna með námi og leggja fyrir sumarlaun til að ná endum saman. Kúvending á vinnumarkaði hefur gjörbreytt tekjumöguleikum stúdenta með námi og að sumri sem nauðsynlegt er að bregðast við.

5. Við óskum þess að háskólar á landinu taki upp námskeið og kennslu yfir sumartímann fyrir þá stúdenta sem fá ekki vinnu. Að öðrum kostum neyðast atvinnulausir stúdentar til þess að sækja um atvinnuleysisbætur frá ríkinu.

6. Við óskum þess að Nýsköpunarsjóð námsmanna verði efldur og styrktur og sporni þannig við auknu atvinnuleysi og ýti undir framtakssemi námsmanna.

7. Við óskum þess að ríkisstjórn og sveitarfélög styðji rækilega við uppbyggingu nýrra stúdentagarða og efni þá samninga sem þegar hafa verið undirritaðir. Fleiri hundruð stúdenta bíða eftir stúdentahúsnæði og þeim mun fjölga þar sem æ fleiri námsmenn sjá fram á mikla fjárhags- og greiðsluörðugleika.

8. Við óskum þess að stjórnvöld taki höndum saman við aðra Íslendinga við að byggja upp samfélag grundvallað á þekkingu, jafnrétti, félagslegu réttlæti og manngildi.

Undir þetta ritar Stúdentaráð Háskóla Íslands, Stúdentaráð Háskólans í Reykjavík, Stúdentaráð Kennaraháskóla Íslands, félag stúdenta við Háskólann á Akureyri, Listaháskóli Íslands, Stúdentafélag Háskólans á Hólum, Samband íslenskra námsmanna erlendis, Samband íslenskra framhaldsskólanema og Hagsmunafélag íslenskra framhaldsskólanema.

 

 

""

Viðburðir

Maður vikunnar

Helgi Möller Hugbúnaðarsérfræðingur er maður vikunnar

Maður vikunnar

Vinnur við forritun á Uglunni