Háskóli Íslands student.is

Stúdent.is

Stúdent.is
Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Dröfn Vilhjálmsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði

Er óvirkur félagi.

Þórdís Steinarsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Margrét Svava Jónsdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku.

Já, örlítið.

Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Maya Staub, þýska.

Nei.

Nökkvi Jarl Bjarnason, japanska og bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Árni Jóhannsson, bókasafns- og upplýsingafræði.

Er skráður.


Rannsóknarsetur í fötlunarfræðum

Printer-friendly version

Hlutverk rannsóknaseturs í fötlunarfræðum  er að auka og efla rannsóknir í fötlunarfræðum og á málefnum fatlaðs fólks meðal annars með því að tengja sem best rannsóknir og kennslu í fötlunarfræðum, laða fræðimenn til starfa á þessum vettvangi og veita nemendum í framhaldsnámi aðstöðu fyrir rannsóknir en nú eru tveir nemar í doktorsnámi á þessu fræðasviði auk nokkurra meistaranema. Markmið fötlunarfræði er að þróa nýjan skilning: fötlun sé ekki síður félagslegt fyrirbæri en læknisfræðilegt. Fötlunarfræði er þverfaglega grein og í rannsóknum hérlendis er m.a. kannað hvernig fjallað er um fatlaða í bókmenntum, listum og dægurmenningu.

Með rannsóknasetri í fötlunarfræðum skapast þverfaglegur vettvangur rannsókna á sviði fötlunarfræða en stofnunin er sú fyrsta á þessu fræðasviði hér á landi. Rannsóknasetrið starfar sem undirstofnun Félagsvísindastofnunar og njóta góðs af þeirri miklu reynslu sem þar er til staðar. Forstöðumaður rannsóknasetursins er Rannveig Traustadóttir prófessor og aðstoðar-forstöðumaður er Hanna Björg Sigurjónsdóttir lektor í fötlunarfræðum. Hrefna K. Óskarsdóttir hefur verið ráðin verkefnisstjóri og mun annast daglegan rekstur setursins.

Rannsóknasetrið starfrækir vefsetur sem er ætlað að vera miðstöð þekkingar, fróðleiks og upplýsinga í fötlunarfræðum og fróðleiksbrunnur fyrir fatlað fólk og aðra sem hafa áhuga á málefnum fatlaðra.

Rannsóknasetur í fötlunarfræðum við Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands var formlega stofnað þann 3. mars 2006 þegar samstarfssamningur milli Minningarsjóðs Margrétar Björgólfsdóttur og Háskóla Íslands var undirritaður.

Netfang:  fotlun@hi.is

Rannsóknasetur  í fötlunarfræðum
Háskóla Íslands
Félagsvísindadeild
Gimli v/ Sturlugötu
101 Reykjavík

Viðburðir

Nemendafélag í nærmynd

Naglarnir er félag umhverfis- og byggingarverkfr-ðinema við HÍ.

fleiri nemendafélög

Notkun á facebook við kennslu lofar góðu

,,Á facebook eru kennarar og nemendur jafningjar" sagði Silja Bára Ó...