RIKK hefur starfað síðan 1991 og er leiðandi afl í kvenna- og kynjarannsóknum á Íslandi. Aðalmarkmið RIKK er að efla og samhæfa jafnréttisrannsóknir og rannsóknir í kvenna- og kynjafræðum jafnframt því að vinna að og kynna niðurstöður rannsókna. RIKK miðlar þekkingu á sviði kvenna- og kynjafræða með því að gangast fyrir námskeiðum, fyrirlestrum, ráðstefnum og útgáfu. Rannsóknastofu í kvenna- og kynjafræðum er ætlað að veita upplýsingar og ráðgjöf um kvenna- og kynjarannsóknir, hafa samstarf við innlenda og erlenda rannsóknaraðila og styðja og styrkja nám í kynjafræðum innan og utan Háskóla Íslands. Stofan stuðlar jafnframt að þverfaglegri samvinnu fræðigreina.
Í daglegu starfi miðlar RIKK þekkingu um rannsóknir á fræðasviðinu, hvetur til rannsókna og styður fræðimenn við rannsóknir sínar og skipuleggur og býr til grundvöll fyrir rannsóknastarf. Stofan tekur þátt í evrópskum og norrænum rannsóknaverkefnum og tengslanetum með fjölbreyttum áherslum.
Rannsóknastofa í kvenna- og kynjafræðum við Háskóla Íslands er þverfagleg stofnun sem heyrir undir háskólaráð.

