Jafnrétti kvenna og karla
Fyrsta jafnréttisáætlun Háskóla Íslands var samþykkt af háskólaráði 19. október 2000. Í áætluninni fólst viðurkenning á nauðsyn þess að grípa til sérstakra tímabundinna aðgerða til þess að raunverulegt jafnrétti og jafnstaða kvenna og karla næðist. Nú eins og þá er stefnt að því að kynja- og jafnréttissjónarmið séu samþætt allri starfsemi Háskóla Íslands, s.s. við stjórnun, kennslu og rannsóknir og að jafnrétti kynja verði haft að leiðarljósi við stefnumótun, ákvarðanatöku og áætlanagerð.
Háskóli Íslands er vettvangur vísinda og rannsókna og til að vísindastarfs skólans standist alþjóðlegan samanburð og nýtist samfélaginu öllu þarf það að endurspegla fjölbreytni sína. Því þarf að tryggja að bæði karlar og konur hafi jafnan aðgang að menntun, framgangi, rannsóknum og fjármagni. Þess vegna er öllum deildum og stofnunum Háskóla Íslands gert að vinna samkvæmt jafnréttisáætlun þessari, setja sér eigin jafnréttisáætlun og vinna eftir henni.
Jafnréttisáætlun Háskóla Íslands skiptist í fjóra meginþætti
- að jafna stöðu og kjör karla og kvenna innan HÍ
- að jafna aðild kynjanna að nefndum, stjórnum og ráðum skólans
- að jafna aðstöðu kvenna og karla til náms
- að samþætta kynja- og jafnréttissjónarmið við alla stefnumótun og áætlanagerð
Jafnréttisáætlunin er ein af þremur meginstoðum í jafnréttisstarfi Háskólans. Hinar tvær eru Stefna Háskóla Íslands gegn mismunun og Stefna í málefnum fatlaðra

