Háskóli Íslands student.is

Stúdentaráð

Stúdentaráð
Hversu vel hefurðu fylgst með kosningunum til Stúdenta- og Háskólaráðs?

Jóhann Jóhannsson, félagsfræði
Mjög lítið.

Ólafur Melsteð, viðskiptafræði
Hef ekkert fylgst með.

Anna Kristín Cartesegna, sálfræði.
Ekki nógu vel.

Hversu vel hefurðu fylgst með kosningunum til Stúdenta- og Háskólaráðs?

Silja Jónsdóttir, sálfræði
Eiginlega ekkert.

Martha María Einarsdóttir, félagsráðgjöf
Mjög lítið.

Jóhann Gunnarsson, bókasafns- og upplýsingafræði
Eiginlega ekki neitt.


Félagslíf

Printer-friendly version

Félagslíf stúdenta Háskóla Íslands er víðfemt og í senn heillandi. Innan nemendafélaga er stöðug dagskrá en einnig er þverfræðilegt félagslíf umfangsmikið sem og árlegar stórskemmtanir á vegum Stúdentaráðs.

Stórhátíðarnefnd SHÍ stendur fyrir skipulagningu og framkvæmd helstu félagsviðburða ráðsins ár hvert og hefur gaman af. Stærstu viðburðir skólaársins eru annars vegar Stúdentadagar sem haldnir eru í byrjum september ár hvert en þá er spurninga- og fótboltakeppni milli deilda og stórdansleikur. Hins vegar stendur SHÍ fyrir Októberfest ár hvert sem er eins og nafnið gefur til kynna í október. Stórhátíðarnefndin hefur síðan fleiri ása í jakkaerminni.

Dansandi stúdentar

Það eru fleiri en dúkkur sem dansa og dansa og dansa en fulltrúar þess flokks innan Háskóla Íslands eru án efa stúdentar Háskóladansins. Þeir hittast reglulega og taka saman hressilegt Boogie Woogie, hip-hop, lindy hop, salsa og swingað rokk og ról. Á vegum félagsins eru haldin regluleg námskeið, gegn vægu verði fyrir stúdenta að sjálfsögðu. Félagið heldur úti heimasíðunni www.haskoladansinn.is þar sem helstu upplýsingar um samtökin er að finna, sem og tæknilegar upplýsingar, skráningu á námskeið og fleira í þeim dúr.

Leikglaðir stúdentar

Ef þér finnst gaman að sleppa fram af þér beislinu, gleyma stund og stað, elskar spuna, propps, flipp og æsing gæti Stúdentaleikhúsið verið eitthvað fyrir þig. Að því standa gjörningaóðir og leikglaðir stúdentar sem setja upp tvær leiksýningar á hverju skólaári. Í Stúdentaleikhúsinu er alls konar fólk þó flest eigi það sameiginlegt að vera ofurlítið athyglissjúkir stúdentar við HÍ (þó eina skilyrðið fyrir inngöngu sé að vera búin/n með framhaldsskólapróf).

Þetta iðandi og unga áhugaleikhús hefur þótt ansi kröftugt og fengið góða dóma fyrir áhugamannaleiksýningar sínar. Meðlimir Stúdentaleikhússins fara oft í frekara listnám og margir fyrrverandi meðlimir Stúdentaleikhússins vinna í dag við leiklist eða í leikhúsum. Stúdentaleikhúsið er netvætt og hefur yfir að ráða síðunni www.studentaleikhus.is þar sem fullt af fróðleik er að finna.

Tónelskir stúdentar

Sértu kvenkyns HÍ-stúdenta sem þráir að komast í kórastarf standa þér tveir vegir færir: Þátttaka í Háskólakórnum eða þátttaka í Kvennakór Háskóla Íslands. Það gefur því augaleið að karlkyns HÍ-stúdentum hafa aðeins einn innanbúðarkór til þess að ganga í. Hjá báðum söngsveitum eru reglulegar æfingar og troðið er upp við hvert tækifæri. Kvennakórinn æfir einu sinni í viku í Eirbergi en Háskólakórinn, sem heldur úti síðunni www.kor.hi.is, hefur stífari æfingar og fleiri meðlimi.

English version:

Social life

 

Viðburðir

Gallía í nærmynd

Gallía er hópur galvaskra frönskunema.

fleiri nemendafélög

Háskólaumræðan - þjóðfélagsumræðan

Í háskólaumræðuna voru fengin þau Ágúst Borgþór Sverrisson og ...