Margþættur rekstur
FS hefur um árabil byggt upp og rekur nú margháttaða þjónustu fyrir stúdenta. Þá beitir FS sér eftir þörfum fyrir því að ný fyrirtæki í þágu stúdenta séu stofnuð. FS styrkir Stúdentaráð Háskóla Íslands og félög stúdenta við HÍ með útgáfustyrkjum eða á annan hátt.
Félagsstofnun stúdenta var stofnuð með lögum nr. 33, 1968 og tók formlega til starfa 1. júní sama ár. Aðild að stofnuninni eiga allir skrásettir stúdentar við Háskóla Íslands, Háskólinn og menntamálaráðuneytið. Í stjórn FS eiga sæti fimm fulltrúar. Þrír fulltrúar eru tilnefndir af Stúdentaráði HÍ, einn af HÍ og einn af menntamálaráðuneytinu.
Nú árið 2009 rekur FS Bóksölu stúdenta, Kaffistofur stúdenta, Leikskóla stúdenta, Stúdentagarða, Stúdentamiðlun og Hámu.
FS í hnotskurn
- Aðalmarkmið FS er að bjóða stúdentum við HÍ góða þjónustu á góðum
kjörum og tryggja öruggan rekstrargrundvöll stofnunarinnar.
- Hlutverk Bóksölu stúdenta er að útvega háskólastúdentum námsefni og önnur aðföng til náms.
- Hlutverk Hámu og Kaffistofa stúdenta er að stuðla að heilbrigðu mataræði háskólastúdenta með því að bjóða fjölbreytt og gott vöruúrval.
- Hlutverk Leikskóla FS er að stuðla að tryggu framboði leikskólarýma, öruggri vistun og framsækinni fræðslu fyrir börn háskólastúdenta.
- Hlutverk Stúdentagarða er að bjóða stúdentum við Háskóla Íslands til leigu hentugt og vel staðsett húsnæði á sanngjörnu verði.
- Hlutverk Stúdentamiðlunar er að aðstoða námsmenn við leit að störfum og verkefnum, að aðstoða stúdenta við að útvega sér leiguhúsnæði á frjálsum markaði og að miðla og koma verkefnum , rannsóknum og þekkingu á framfæri.

