Sprengjugengið er hópur efnafræðinema við Háskóla Íslands. Hópurinn heldur sýningar á Háskóladeginum á hverju ári til þess að kynna efnafræðideildina og skemmta gestum á sama tíma. Student.is var meðal áhorfenda í Háskólabíói á laugardaginn var og fylgdist fréttamaður með efnafræðingunum leika listir sínar.

