Háskóli Íslands student.is

Stúdent.is

Stúdent.is
Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Dröfn Vilhjálmsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði

Er óvirkur félagi.

Þórdís Steinarsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Margrét Svava Jónsdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku.

Já, örlítið.

Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Maya Staub, þýska.

Nei.

Nökkvi Jarl Bjarnason, japanska og bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Árni Jóhannsson, bókasafns- og upplýsingafræði.

Er skráður.


Stefna Háskóla Íslands í málefnum fatlaðra

Printer-friendly version

Stefna Háskóla Íslands í málefnum fatlaðra

Markmið Háskóla Íslands er að skapa fötluðum stúdentum og starfsfólki þau skilyrði sem gerir þeim kleift að taka virkan þátt í háskólastarfinu. Samkvæmt stefnu þessari er fötlun skilgreind í sinni víðustu merkingu og tekur til hreyfi- og skynhamlana, andlegra veikinda, sértækra námsörðugleika og tímabundinna líkamlegra og sálrænna vandamála sem áhrif hafa á athafnir daglegs lífs. Stefnan tekur einnig til almennings sem sækir opinbera viðburði á vegum skólans. 

Markmið stefnunnar er

  • að fatlað starfsfólk og stúdentar hafi aðgang að viðeigandi stuðningi og gerðar séu breytingar sem miða að því að gera þeim kleift að taka virkan þátt í háskólastarfinu 
  • að skoðanir einstakra stúdenta og starfsfólks séu ávallt teknar til greina þegar þarfir þeirra eru metnar 
  • að þeir sem vinna með fötluðum, hvort sem um er að ræða vinnufélaga, kennara eða stúdenta, fái nauðsynlegar upplýsingar og fræðslu 
  • að stúdentum og starfsfólki sem verður fyrir áfalli sem leiðir til fötlunar sé gert kleift að halda áfram að stunda þá vinnu eða það nám sem það valdi sér 
  • að fatlaðir geti tekið þátt í opinberum samkomum sem haldnar eru á háskólasvæðinu 
  • að háskólasvæðið sé aðgengilegt og öruggt fyrir fatlaða með þeim takmörkunum sem eldri byggingar setja. 

Stefnan í heild sinni

Viðburðir

Haxi í nærmynd

Haxi er félag líffræðinema.

fleiri nemendafélög

Notkun á facebook við kennslu lofar góðu

,,Á facebook eru kennarar og nemendur jafningjar" sagði Silja Bára Ó...