Stefna Háskóla Íslands gegn mismunun
Háskóli Íslands skilgreinir jafnréttisstarf sem lið í umbótum innan skólans. Jafnrétti á vinnustað er grundvallarréttur allra starfsmanna og stúdenta. Háskólinn er einn fjölmennasti vinnustaður landsins og honum er það kappsmál að tryggja vellíðan starfsfólks og stúdenta og skapa vinnuumhverfi sem gerir öllum kleift að njóta sín á jafnréttisgrundvelli. Stefna Háskóla Íslands gegn mismunun nær til hvers kyns mismununar á grundvelli kyns, kynþáttar, kynhneigðar, aldurs, fötlunar, heilsufars, þjóðernis, litarháttar, uppruna, trúarbragða, skoðana, menningar eða stöðu að öðru leyti, sem lítilsvirðir eða misbýður einstaklingi eða hópi sem fyrir henni verður. Stefnan nær til allra starfsmanna Háskólans, stúdenta og gesta, einnig sérfræðinga og annarra sem starfa að verkefnum sem fjármögnuð eru af aðilum utan Háskólans.
Stefna Háskóla Íslands gegn mismunun er samþykkt á háskólaþingi í nafni háskólasamfélagsins. Hún er ein af þremur meginstoðunum í jafnréttisstarfi Háskólans. Hinar tvær eru áætlun um jafnrétti kynjanna og stefna í málefnum fatlaðra. Þar er nánar kveðið á um hvernig stuðla beri að auknu jafnrétti kynjanna og hvernig skapa megi fötluðum skilyrði til að taka virkan þátt í háskólasamfélaginu.
Mismunun, bein eða óbein, er ekki liðin við Háskóla Íslands, hvorki meðal stúdenta né starfsfólks. Sérhver starfsmaður og stúdent ber ábyrgð á því að vinna gegn því að mismunun eigi sér stað. Það er jafnframt sameiginleg ábyrgð allra starfsmanna og stúdenta að gæta þess að skapa ekki með orðum sínum eða gerðum fjandsamlegt andrúmsloft gegn ákveðnum einstaklingi eða hópi.
Stefnan er reist á jafnræðisreglu samkvæmt 65. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, sbr. stjórnskipunarlög nr. 97/1995, og 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ásamt margvíslegum öðrum lagaákvæðum sem leggja bann við mismunun. Stefna þessi á einnig rætur í alþjóðlegum mannréttindasáttmálum og mannréttindayfirlýsingum.

