Háskóli Íslands student.is

Stúdentaráð

Stúdentaráð
Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Dröfn Vilhjálmsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði

Er óvirkur félagi.

Þórdís Steinarsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Margrét Svava Jónsdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku.

Já, örlítið.

Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Maya Staub, þýska.

Nei.

Nökkvi Jarl Bjarnason, japanska og bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Árni Jóhannsson, bókasafns- og upplýsingafræði.

Er skráður.


Femíniskir stúdentar

Printer-friendly version

Á síðasta skólaári var Femínistafélag Háskóla Íslands stofnað við vægast sagt góðar undirtektir stúdenta og kennara  af báðum kynjum. Tilgangur félagsins er að upplýsa stúdenta og samfélagið um femínisma með því að fjalla um hann á fræðilegum grundvelli. Félagið mun sjá um og halda fyrirlestra og námskeið um jafnrétti kynjanna og sjá til þess að Háskóli Íslands taki sig á og verði leiðandi afl í jafnréttisbaráttu íslensks samfélags. Félagið er þverpólitískt og tengist engum öðrum félögum innan Háskólans.

Að stofnunni stóðu nokkrar innanbúðar stúdentakindur í því skyni að upplýsa stúdenta og samfélagið um femínisma með því að fjalla um hann á fræðilegum grundvelli. Femínistafélagið stóð m.a. fyrir gjörningi þar sem skærbleikum plakötum með ögrandi skilaboðum var dreift um háskólasvæðið í því skyni að vekja einstaklinga sem eyða deginum á háskólasvæðinu til umhugsunar um jafnrétti kynjanna.

Femínistafélagið heldur úti netsíðunni www.femstudent.blogspot.com þar sem forvitnast má um þessi snarbleiku félagasamtök, skrá sig á póstlista eða leggja sitthvað í púkkið femínistum til framdráttar. Ef spurningar vakna um félagið eða starfsemi þess má senda póst á veffangið studentfemmi@gmail.com.

English version:

We can do it, ladies

Viðburðir

FLOG í nærmynd

FLOG er nemendafélag lífeinda- og geislafræðinem-a.

fleiri nemendafélög

Notkun á facebook við kennslu lofar góðu

,,Á facebook eru kennarar og nemendur jafningjar" sagði Silja Bára Ó...