Stúdentaráð starfrækir greiningarsjóð fyrir nemendur með sértæka námsörðugleika þar sem þeir þurfa á greiningu vegna þess að halda geta sótt um styrk upp í kostnaðvið greiningu. Greiningar af þessu tagi eru oft mjög dýrar en til þess að HÍ geti komið til móts við nemendur með öryggi verða nemendur að fá greiningu af fagaðilum. Fyrsta úthlutun sjóðsins fór fram í apríl 2007 en stefnt er að því að úthluta einu sinni áhverri önn.
Stjórn sjóðsins skipa
- Lilja Dögg Jónsdóttir, formaður Stúdentaráðs
- Hanna María Guðbjartsdóttir, formaður jafnréttisnefndar Stúdentaráðs
- Arnfríður Ólafsdóttir, deildarstjóri náms- og starfsráðgjafar HÍ.
Lög sjóðsins:
Lög um Greiningarsjóð fyrir nemendur með sértæka námsörðugleika
1. Nafn og hlutverk
1.1. Nafn sjóðsins er ,,Greiningarsjóður fyrir nemendur með sértæka námsörðuleika og athyglisbrest‘‘ og er hann í vörslu S.H.Í.
1.2. Hlutverk sjóðsins er að koma til móts við kostnað námsmanna sem fara í greiningu vegna sértækra námsörðugleika og vegna athyglisbrests (ADHD)
2. Stjórn sjóðsins
2.1. Stjórn sjóðsins skal skipuð 3 mönnum, formanni Jafnréttisnefndar S.H.Í, námsráðgjafa frá Háskóla Íslands og formanni S.H.Í.
2.2. Fyrsta fund sjóðsstjórnar skal halda fyrir 1. október. Á fyrsta fundi sjóðsstjórnar, sem formaður S.H.Í. kallar til, skal velja formann sjóðsins og varaformann, sem jafnframt er ritari stjórnar. Hlutverk formanns sjóðsstjórnar er að halda utan um starfsemi sjóðsins, skv. reglugerð þessari og verklagsreglum fyrir formann sjóðsstjórnar.
2.3. Sjóðsstjórn skal halda fundargerðir.
2.4. Til þess að fundur sé ályktunarhæfur þurfa 2 skipaðir fulltrúar að sitja hann. Ef atkvæði standa á jöfnu ræður atkvæði formanns, en atkvæði varaformanns að honum fjarstöddum.
2.5. Sjóðsstjórn skal setja sér vinnureglur í anda þessara laga fyrir fyrstu úthlutun og skulu sömu vinnureglur gilda um allar úthlutanir á hverju ári.
2.6. Þegar sérstaklega stendur á er heimilt að beina því til Stúdentaráðs að Stúdentaráð kjósi stjórn sjóðsins sérstaklega, á þá grein 2.1 ekki við. Eigi að síður skal námsráðgjafa frá Háskóla Íslands vera boðið að sitja í sjóðsstjórn með atkvæðisrétt.
3. Fjármagn sjóðsins
3.1. Sjóðsstjórn skal skipa 3 einstaklinga á ári hverju til að sækja um styrki frá fyrirtækjum og félagasamtökum til að fjármagna sjóðinn. Einnig má fjármagna sjóðinn með gjöfum og framlögum sem honum kunna að berast.
4. Úthlutunarreglur
4.1. Sjóðsstjórn skal úthluta styrkjum a.m.k. einu sinni á hvoru misseri. Fyrsta úthlutun skal fara fram fyrir 1. nóvember. Sjóðsstjórn skal auglýsa væntanlega úthlutun í tölvupósti til allra stúdenta við H.Í.
4.2. Úthlutun skal fara fram eigi síðar en 2 vikum eftir að umsóknarfrestur rennur út. Umsóknareyðublöð ásamt reglugerð þessari og vinnureglum sjóðsins skulu liggja frammi á skrifstofu S.H.Í. og vera aðgengilegar á heimasíðu S.H.Í. Umsóknaraðili, sem jafnframt er ábyrgðaraðili umsóknarinnar, ber ábyrgð á því að formlega sé tekið á móti umsókninni.
4.3. Sjóðsstjórn ber að tilkynna umsækjanda um afgreiðslu umsóknar í tölvupósti. Þar skal einnig tilgreina fjárhæð styrks, hvar megi vitja hans og hvar megi nálgast útdrátt úr skýrslu sjóðsstjórnar sbr. gr. 7.1.
5. Hvað er styrkhæft
5.1. Allir stúdentar við Háskóla Íslands geta sótt um styrk ef þeir hafi farið í greiningu vegna sértækra námsörðugleika eða athyglisbrests (ADHD) og fengið niðurstöður þaðan.
5.2. Styrk má ekki veita ef meira en ár er liðið frá því að niðurstöður úr greiningu vegna sértækra námsörðugleika eða athyglisbrests (ADHD) urðu ljósar.
5.3. Styrkur skal koma til móts við umsækjanda eins og fjármál sjóðsins leyfa.
5.4. Óheimilt er að veita meira en 75% af heildarsjóðnum í styrki á ári hverju.
5.5. Sé styrkur ekki sóttur innan 6 mánaða telst hann þar með niðurfallinn, enda hafi styrkþega verið eða mátt vera kunnugt um að beiðni hans hafi verið tekin til greina.
5.6. Úrskurðir sjóðsstjórnar eru fullnaðarúrskurðir.
6. Skyldur styrkþega
6.1. Styrkþegi skal skila inn afriti af niðurstöðu greiningar um sértæka námsörðugleika eða athyglisbrests (ADHD), upplýsingum um hver framkvæmdi hana ásamt afriti af reikningi vegna greiningarinnar.
7. Gildistaka og annað
7.1. Sjóðsstjórn skal, að loknu hverju starfsári, senda skrifstofu S.H.Í. skriflega skýrslu um starf sitt. Í skýrslunni skal koma fram hverjum hafi verið úthlutaðir styrkir og hversu mikið. Einnig skulu þar koma fram athugasemdir ef einhverjar eru á lögum þessum.
7.2. Jafnréttisnefnd S.H.Í. skal endurskoða lög þessi á eins árs fresti og leggja breytingartillögur fyrir S.H.Í.
7.3. Lög þessi taka nú þegar gildi.







