- Neyðarnúmer Nýnema er: 570-0870
- Emergency number for International students: 570-0870
Dröfn Vilhjálmsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði
Er óvirkur félagi.
Þórdís Steinarsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði.
Nei.
Margrét Svava Jónsdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku.
Já, örlítið.
Maya Staub, þýska.
Nei.
Nökkvi Jarl Bjarnason, japanska og bókasafns- og upplýsingafræði.
Nei.
Árni Jóhannsson, bókasafns- og upplýsingafræði.
Er skráður.

Háskólabyggingar
Háskólasvæðið skiptist í nokkra kjarna. Stærstur er kjarninn beggja megin Suðurgötunnar þar sem margar deildir eru til húsa. Heilbrigðisvísindin eiga sínar byggingar m.a. við Neshaga og í kringum Háskólasjúkrahúsið og Menntavísindasvið er til húsa í Stakkahlíð.
Kort af Háskólasvæðinu og byggingum.
Tölvuver og lesrými
Lesrými og tölvuver eru í flestum byggingum Háskólans og geta nemendur notað þau að vild. Prentarar og ljósritunarvélar eru víða. Prentkvóta má kaupa í Uglunni eða á Þjónustuborði í Háskólatorgi. Nokkuð mismunandi er eftir byggingum hvar ljósritunarkort eru keypt.
Kaffistofur og mötuneyti
Mötuneyti stúdenta er Háma á Háskólatorgi. Þar má kaupa heitan mat í hádegi og auk þess súpur, kaffi, ýmsa kalda rétti og samlokur og drykki. Stúdentaskírteini veitir afslátt af heitum mat. Í Fjöru á Menntavísindasviði er einnig mötuneyti sem selur heitan mat.
Minni kaffistofur eru víða um háskólasvæðið og eru þær ýmist reknar af Félagsstofnun stúdenta eða nemendafélögum.
Íþróttahús
Stúdentum stendur til boða að kaupa líkamsræktarkort í íþróttahúsinu við Suðurgötu á vægu verði. Í íþróttahúsinu er tækjasalur en auk þess er boðið upp á ýmsa tíma, jóga, þolfimi o.fl. Stóri salurinn er einnig til útleigu fyrir hópa og í húsinu er gufubað. Á Laugarvatni er einnig íþróttahús.
Nánari upplýsingar um íþróttahús Suðurgötu