- Neyðarnúmer Nýnema er: 570-0870
- Emergency number for International students: 570-0870
Jóhann Jóhannsson, félagsfræði
Mjög lítið.
Ólafur Melsteð, viðskiptafræði
Hef ekkert fylgst með.
Anna Kristín Cartesegna, sálfræði.
Ekki nógu vel.
Silja Jónsdóttir, sálfræði
Eiginlega ekkert.
Martha María Einarsdóttir, félagsráðgjöf
Mjög lítið.
Jóhann Gunnarsson, bókasafns- og upplýsingafræði
Eiginlega ekki neitt.


Þegar þú byrjar nám við Háskóla Íslands verður þú ekki einungis nemandi í nýjum skóla, þú verður hluti af fjölbreyttu, alþjóðlegu og lifandi samfélagi. Í Háskólanum er öflugt félagslíf þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
Nemendafélög
Tugir nemendafélaga eru starfrækt við Háskólann og þau standa fyrir ýmis konar félagslífi. Flest félögin eru tengd við ákveðnar námsgreinar eða deildir, en einnig eru ýmis félög utan deilda, svo sem Q, félag hinsegin stúdenta og Samtök erlendra stúdenta. Vísindaferðir, ræðukeppnir, íþróttakeppnir og blaðaútgáfa er einungis brot af því fjölbreytta starfi sem nemendafélögin bjóða upp á.
Dans, söngur og leikhús
Tveir kórar eru starfræktir við Háskóla Íslands, Háskólakórinn og Kvennakór Háskóla Íslands. Söngelskir stúdentar ættu því að finna eitthvað við sitt hæfi. Stúdentaleikhúsið er löngu orðinn hluti af menningarlífi landsins og Háskóladansinn er með dansnámskeið fyrir stúdenta.