Háskóli Íslands student.is

Stúdent.is

Stúdent.is
  • Neyðarnúmer Nýnema er: 570-0870
  • Emergency number for International students: 570-0870
Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Dröfn Vilhjálmsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði

Er óvirkur félagi.

Þórdís Steinarsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Margrét Svava Jónsdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku.

Já, örlítið.

Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Maya Staub, þýska.

Nei.

Nökkvi Jarl Bjarnason, japanska og bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Árni Jóhannsson, bókasafns- og upplýsingafræði.

Er skráður.


Fræðasvið og deildir

Printer-friendly version

Félagsvísindasvið

Heilbrigðisvísindasvið

Hugvísindasvið

Menntavísindasvið

Verkfræði- og náttúruvísindasvið

 

Félagsvísindasvið

Við upphaf náms verða nýnemar boðaðir til kynningarfundar með starfsfólki deilda Félagsvísindasviðs, kennurum og eldri nemendum. Á þeim fundi verður starfsemi HÍ, Félagsvísindasviðs og deilda þess kynnt, ásamt þeirri þjónustu sem í boði er fyrir nemendur.

Kynningarfundur fyrir nýnema í grunnnámi verður haldinn föstudaginn 27. ágúst nk. kl. 14:00.

Kynningarfundur fyrir nýnema í framhaldsnámi verður haldinn fimmtudaginn 26. ágúst nk. kl. 15:00.

Boðsbréf á kynningarfundi verða send á lögheimili í byrjun ágúst. Nýnemar eru hvattir til að mæta.

 

Hægt er að nálgast dagskrá nýnemadaga hjá hverri deild fyrir sig:

 

 Heilbrigðisvísindasvið

 

Hugvísindasvið

Kynningarfundir fyrir nýnema verða haldnir föstudaginn 27. ágúst. Nánar auglýst síðar.

 

Menntavísindasvið

Móttaka nýnema í grunnnámi við Menntavísindasvið fer fram 23. ágúst. Nýnemar mæta í fyrirlestrarsal Menntavísindasviðs, Skriðu, kl. 8.30 um morguninn þar sem rektor og forseti Menntavísindasviðs flytja stutt ávörp. Sérstök nýnemadagskrá er í gangi til hádegis. Markmiðið með móttökunni er að nýnemar kynnist sviðinu og þeirri þjónustu sem er í boði.

Mikilvægt er að nýnemar mæti í móttökuna þar sem þeir fá leiðsögn um húsnæði sviðsins, kennslu í ýmsum tæknilegum málum, fræðslu um bókasafnið og hitta fulltrúa Stúdentaráðs. Nemendur fá einnig gott tækifæri til að kynnast samnemendum sínum.

Móttaka nýnema á Laugarvatni fer einnig fram 23. ágúst kl. 11.00 í K-sal í skólahúsi. Vatnagarður opnar kl: 9.00 og þá eiga leigjendur á Vatnagarði að koma á skrifstofu til að undirrita leigusamninga og fá afhenta lykla að herbergjum. Sjá nánar á vef Laugarvatns

Nánari upplýsingar um dagskrá nýnemadagsins verða á næstunni sendar til nýnema í tölvupósti.

 

Verkfræði- og náttúruvísindasvið

Móttaka nýnema á Verkfræði- og nátturuvísindasviði verður með hefðbundnu sniði. Kynningarfundur með forseta sviðsins Kristínu Völu Ragnarsdóttur og forsetum deilda verður þriðjudaginn 24. ágúst kl. 10.00. Fundurinn verður haldinn í stóra salnum í Háskólabíó. Að honum loknum munu forsetar deilda hitta sína nemendur. Klukkan 13 verður síðan hópeflisdagskrá fyrir nýnema, hún verður í safnaðarheimili Neskirkju.

 

Nánar um dagskrá Nýnemadaga Verkfræði- og náttúruvísindasviðs

Viðburðir

Nemendafélag í nærmynd

Curator er félag hjúkrunarnema við HÍ. Mottó félagsins er „Have fun or die trying“.

fleiri nemendafélög

Notkun á facebook við kennslu lofar góðu

,,Á facebook eru kennarar og nemendur jafningjar" sagði Silja Bára Ó...