- Neyðarnúmer Nýnema er: 570-0870
- Emergency number for International students: 570-0870
Jóhann Jóhannsson, félagsfræði
Mjög lítið.
Ólafur Melsteð, viðskiptafræði
Hef ekkert fylgst með.
Anna Kristín Cartesegna, sálfræði.
Ekki nógu vel.
Silja Jónsdóttir, sálfræði
Eiginlega ekkert.
Martha María Einarsdóttir, félagsráðgjöf
Mjög lítið.
Jóhann Gunnarsson, bókasafns- og upplýsingafræði
Eiginlega ekki neitt.


Nýnemakynningar deilda og fræðasviða
Nám í Háskóla Íslands hefst með svokallaðri nýnemakynningu. Fræðasvið og deildir taka á móti sínum nemendum, kynna kennara og starfsfólk sviðsins, segja frá helstu þjónustu sem stendur nemendum til boða og veita ýmsar gagnlegar upplýsingar sem nemendur þurfa nauðsynlega á að halda. Nemendafélög taka einnig oftast þátt í kynningunni, enda er félagslífið mikilvægur hluti af dvöl í Háskóla Íslands.
Nýnemakynningar hjá deildum og fræðasviðum
Sameiginleg dagskrá fyrir nýnema og Stúdentadagar
Sameiginlegir nýnemadagar Háskóla Íslands verða haldnir dagana 30. ágúst til 3. september í haust. Á nýnemadögunum verður ýmis þjónusta skólans kynnt, boðið verður upp á gönguferðir um háskólasvæðið og nemendur geta kynnt sér starfsemi nemendafélaga og annarra stúdentasamtaka. Einnig verða skemmtiatriði, tónleikar o.fl á Háskólatorgi og víðar. Nýnemadögunum lýkur með Stúdentadögunum, sem Stúdentaráð skipuleggur, en þeir eru 2. og 3. september. Þá keppa deildir sín á milli í ýmsum íþróttum, spurningakeppni o.fl. og ýmislegt annað skemmtilegt verður í boði.
Dagskrá sameiginlegra nýnemadaga
Nýnemar eru hvattir til þess að mæta á sem flesta viðburði nýnemadaga.