Háskóli Íslands student.is

Stúdent.is

Stúdent.is
  • Neyðarnúmer Nýnema er: 570-0870
  • Emergency number for International students: 570-0870
Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Dröfn Vilhjálmsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði

Er óvirkur félagi.

Þórdís Steinarsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Margrét Svava Jónsdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku.

Já, örlítið.

Ertu virk/ur í félagi innan háskólans?

Maya Staub, þýska.

Nei.

Nökkvi Jarl Bjarnason, japanska og bókasafns- og upplýsingafræði.

Nei.

Árni Jóhannsson, bókasafns- og upplýsingafræði.

Er skráður.


Tölvuþjónusta og netið

Printer-friendly version

Uglan

Uglan, innri vefur Háskóla Íslands, er eitt mikilvægasta tækið sem nemendur og kennarar nota við nám og störf. Ugluna má finna á ugla.hi.is, en einnig er hægt að skrá sig inn af forsíðu hi.is. Kennarar leggja kennsluáætlanir, glærur og fyrirlestra, verkefni og ýmislegt annað inn á Ugluna og nemendur geta nálgast skjölin þar. Einnig eru ýmsar mikilvægar tilkynningar birtar í Uglu. Aðgangur hvers og eins nemanda byggir á því í hvaða námskeið viðkomandi er skráður í og því er mikilvægt að skráning sé alltaf rétt. Kennarar gera ráð fyrir því að nemendur fylgist vel með Uglu.

 

Hvernig fæ ég aðgang að Uglu?

Nýnemar við Háskóla Íslands fá úthlutað veflykli þegar þeir sækja rafrænt um nám við skólann. Eftir að umsækjandi hefur staðfest rafræna umsókn berst veflykillinn í tölvupósti, ef netfang er sett í umsóknina, og á greiðsluseðli fyrir skráningargjöldum. Eftir að skráningargjöld hafa verið greidd má nálgast notendanafn og lykilorð á nynemar.hi.is. Þar með hafa nemendur aðgang að tölvupósti og Uglunni, innri vef Háskólans. Hafi veflykill misfarist, eða er af einhverri ástæðu ekki fyrir hendi, geta nemendur fengið notendanafn og lykilorð á Þjónustuborðinu í Háskólatorgi.

 

Tölvupóstur

Háskólatölvupóstinn má nálgast úr Uglu eða á webmail.hi.is. Á vef Reiknistofnunar HÍ má nálgast leiðbeiningar um það hvernig hægt er að setja upp háskólapóstinn í helstu tölvupóstforritum, kjósi nemendur að gera það. Kennarar gera ráð fyrir því að nemendur lesi tölvupóstinn sinn reglulega og senda oft út mikilvægar upplýsingar.

 

Þráðlaust net

Þráðlaust net er á öllu háskólasvæðinu og auðvelt að tengjast hvar sem er. Á vef Reiknistofnunar HÍ má nálgast leiðbeiningar um það hvernig nemendur tengjast netinu, en það er gert í gegnum Uglu. Ef einhver vandamál koma upp má alltaf hafa samband við RHÍ, annað hvort með því að senda póst á help@hi.is eða með því að hringja í þjónustuverið í síma 525 4222. Þá er einnig þjónustuborð á Háskólatorgi sem opið er milli 8.30 og 18.30 á virkum dögum á meðan kennslu stendur en til 16 á sumrin.

Viðburðir

Gallía í nærmynd

Gallía er hópur galvaskra frönskunema.

fleiri nemendafélög

Notkun á facebook við kennslu lofar góðu

,,Á facebook eru kennarar og nemendur jafningjar" sagði Silja Bára Ó...