Dröfn Vilhjálmsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði
Er óvirkur félagi.
Þórdís Steinarsdóttir, MA í bókasafns- og upplýsingafræði.
Nei.
Margrét Svava Jónsdóttir, MA í blaða- og fréttamennsku.
Já, örlítið.
Maya Staub, þýska.
Nei.
Nökkvi Jarl Bjarnason, japanska og bókasafns- og upplýsingafræði.
Nei.
Árni Jóhannsson, bókasafns- og upplýsingafræði.
Er skráður.

Lýðheilsufélag læknanema stendur fyrir Blóðgjafamánuði HÍ nú í mars 2010.
Er það í annað skipti sem slíkur atburður er haldinn, í samvinnu við Vodafone og Stúdentaráð HÍ. Í þessum mánuði verða nemar við HÍ hvattir til að gefa blóð í nafni nemendafélags síns eða námsgreinar. Söfunin fer aðallega fram í Blóðbankanum, en blóðbankabíllinn kemur einnig 3. og 15. mars, þann 3. verður hann á bílastæðinu við Háskólabíó, þann 15. við Odda.
Það nemendafélag sem gefur hlutfallslega mest blóð hlýtur farandbikar
blóðgjafamánaðarins að launum. Verður hann afhentur í lokahófi
mánaðarins. Síðast skilaði þetta átaksverkefni tæpum 200 blóðgjöfum, en nú
er markmiðið að gjafirnar verði enn fleiri.
Blóðbankinn þarf að meðaltali að safna 70 blóðgjöfum á dag til að anna
eftirspurn. Þróunin er hins vegar sú að þörfin fyrir blóðgjafir fer
vaxandi samhliða því að framboðið fer minnkandi. Blóðbankinn þarf um 2.000
nýja blóðgjafa á ári, og er þess vegna mikilvægt að ungt fólk kynnist
starfseminni vel og byrji að gefa blóð. Lýðheilsufélagið vonast því til að
þessu átaki takist að virkja háskólanema sem reglulega blóðgjafa svo
Ísland geti haldið áfram að vera sjálfu sér nægt um blóðhluta.
Frekari upplýsingar má finna á http://www.blodbankinn.is og á
facebook-síðu átaksins,
http://www.facebook.com/group.php?gid=358094801140.