Nýlega voru breytingartillögur á úthlutunarreglum Lánasjóðs Íslenskra Námsmanna samþykktar af meirihluta stjórnar sjóðsins, en fulltrúar námsmanna í stjórninni neituðu að samþykkja tillögurnar. Nú liggja tillögurnar á borði til samþykktar, en ljóst er að þær munu hafa í för með sér umtalsverða kjaraskerðingu fyrir stúdenta. Reglurnar fela m.a. í sér:
- Lágmarksviðmið um námsframvindu hækkað úr 20 einingum á ári í 18 einingar á önn, og 12 einingar fyrir sumarönn.
-Námsmaður fær aðeins lán fyrir að hámarki 30 einingum á önn. Ekki er veitt viðbótarlán á haust- eða vormisseri. Þó helst réttur til þess að fá viðbótarlán vegna náms á sumarönn að hámarki 20 eininga.
- Námsmaður sem lýkur fleiri en 30 einingum á misseri á rétt á að nýta umfram einingarnar á öðru misseri sama námsárs svo framarlega sem lágmarksárangri er náð á því misseri, þ.e. 18 einingum.
- Breyttar reglur um lán til foreldra (bæði einstæðra og í sambúð). Í stað þess að framfærsla hækki um X mikið fyrir hvert barn fyrir hverja ECTS-einingu sem lokið er, breytist stuðullinn nú eftir því hversu mörg börnin eru.
Stúdentaráð mun, ásamt SÍF og námsmannahreyfingum Háskólans í Reykjavík, Háskólans við Bifröst, Landbúnaðarháskólanum og Háskólanum á Akureyri, efna til mótmæla fyrir framan Mennta- og menningarmálaráðuneyti þriðjudaginn næsta klukkan 12 að hádegi (http://www.facebook.com/#!/event.php?eid=122633614438915&index=1).
Tilgangur mótmælanna er að sýna einhug og samstöðu námsmanna gegn þessum breytingum í verki og þrýsta á Katrínu Jakobsdóttur, menntamálaráðherra, til að taka tillögurnar til endurskoðunar. Einnig hefur Stúdentaráð HÍ efnt til undirskriftarsöfnunar og verður hægt að bæta nafni sínu við listann fram til þriðjudagsmorguns: http://www.petitiononline.com/shi10/petition.html.
Menntamálaráðuneytið er til húsa á Sölvhólsgötu 4, 101 Reykjavík
(http://ja.is/kort/#q=index_id%3A163022&x=357392&y=408359&z=9)
Með von um góða þátttöku,
Stúdentaráð Háskóla Íslands
--------------------------------------------------------------------
(English version)
The Student Council calls for a protest outside of the Ministry of Education at noon tomorrow because of the changes to the rules of the Iceland Student Loan Fund.
The rules entail:
- The minimum paradigm for progress of study raised from 20 ECTS per year (two semesters) to 18 ECTS per each semester.
- A student that receives more than 60 ECTS per school year does not have the right anymore to use the extra ECTS to further it's loan within the year.
- A student that finishes more than 30 ECTS per semester has the right to use the extra ECTS within that schoolyear, given that he finishes the minimum paradigm, 18 ECTS.
- Regarding the loan for parents, it will decrease in proportion with how many children they have. There is a fixed amount for each finished ECTS for the first child, if they have more the amount decrease in conformity with the number of children.
- The deadline for application for loan will now be the 1st of December 2010 for the fall semester 2010, 1st of May 2011 for the spring semester 2011 and 1st of July for the summer semester of 2011.
The following link is for a signature collection to press for the Minister to revise the propositions: http://www.petitiononline.com/shi10/petition.html. The petition will be formally handed to Katrín Jakobsdóttir, the Minister of Education, at the protest.
The Ministry of Education is on Sölvhólsgötu 4, 101 Reykjavik (http://ja.is/kort/#q=index_id%3A163022&x=357392&y=408359&z=9).
Best regards,
The Student Council of the University of Iceland
