![]()
Á Ásbrú í Reykjanesbæ (gamla varnarsvæðið) eru um 700 námsmannaíbúðir sem ætlaðar eru bæði einstaklingum, barnlausum pörum eða fjölskyldufólki sem stundar lánshæft nám og þar er boðið uppá lægstu húsaleigu á námsmannaíbúðum á Íslandi. Íbúðirnar eru frá 36 - 190m2, allt frá stúdíóíbúðum til 6 herbergja fjölskylduíbúða.
Herbergi eru öll mjög rúmgóð og aðstaða öll eins og best verður á kosið, öllum íbúðum fylgir ísskápur en hægt er að velja um íbúðir með eða án þvottavélar, þurrkara og uppþvottavélar.
Allt umhverfi og þróun á samfélaginu á Ásbrú miðar að því að gera svæðið að góðu, fjölskylduvænu hverfi sem gott er að búa í meðan á námi stendur, hvort sem er til lengri eða skemmri tíma. Skemmtileg svæði til útivistar og öll helsta þjónusta er í seilingarfjarlægt, á svæðinu er nú veitingastaður og kaffihús, hársnyrtistofa, matvörubúð og bensínstöð.
Góð tenging er við Reykjanesbæ með ókeypis strætó og þangað er hægt að sækja fjölbreytta þjónustu og íþróttaæfingar fyrir börn og unglinga. Innifalið í leigu er internettenging og ferðir með Reykjanes Express milli Ásbrúar og höfuðborgarsvæðisins.
Ítarlegri upplýsingar um íbúðirnar og leiguverð er hægt að nálgast á heimaíðu Keilis, keilir.net, og þar má einnig leggja inn umsókn um íbúð.
