Háskóli Íslands student.is

Stúdentaráð

Stúdentaráð

Hvað finnst þér best við íslenska sumarið?

Maddalena Tovazzi á 2. ári í ensku: Ætli það sé ekki hvað sumarið er bjart. Mér líkar líka vel við veðrið hérna, það er ekki of heitt.
Auður Kamma Einarsdóttir starfsmaður í Háskóla Íslands: Það er frekar hressandi veður hérna á Íslandi! Það er samt ansi gaman hvað sumarið er bjart, ég verð að segja það.
Freyr Björnsson á 3. ári í félagsfræði: Íslenska sumarið er svo passlegt.

Ætlar þú að kíkja við rannsóknarskýrslu ráðstefnu HÍ?

Eva Eiríksdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei, er í prófum
Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei því miður kemst ég ekki vegna prófum.
Juan Serrano mastersnemi í íslensku bókmenntafræði: Nei ég ætla ekki að fara, ég er of upptekin, en mér finnst þetta rosalega áhugavert efni.

Printer-friendly version

Precious til styrktar Stígamótum

HÍMentor og Ólafía, nemendafélög BA og MA nema í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands, í samstarfi við Háskólabíó, Myndfrom og Græna ljósið blása til sannkallaðrar POWER sýningar á myndinni Precious á morgun, miðvikudaginn 17. mars, kl. 20.00. Aðalsöguhetjan er hin 16 ára Claireece Precious Jones. Precious býr í Harlem og er offitusjúklingur, ólæs, reið, bláfátæk og ólétt af sínu öðru barni. Hún hefur þurft að þola kynferðislega misnotkun af hálfu föður síns og andlegt og líkamlegt ofbeldi af hendi móður sinnar. Í myndinni segir hún frá eigin lífi með eigin orðum.

Myndin hlaut sex Óskarsverðlaunatilnefningar og hreppti tvö Óskarsverðlaun - http://www.imdb.com/title/tt0929632/

Allur aðgangseyrir á myndina mun renna óskiptur til Stígamóta, en
grasrótarhreyfingin hélt nýverið upp á 20. ára starfsaldur sinn - http://stigamot.is/

Við vonumst til þess að sjá ykkur öll með tölu á þessari mögnuðu sýningu og lofum því að hún mun snerta ykkur á ótrúlegan hátt.

Kveðja
Mentor og Ólafía

""

Viðburðir

Maður vikunnar

Helgi Möller Hugbúnaðarsérfræðingur er maður vikunnar

Maður vikunnar

Vinnur við forritun á Uglunni