Alþjóðanefnd Stúdentaráðs og Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins vill minna á tengiliða- eða „buddy“ verkefnið. Nú hafa þegar fjölmargir skiptistúdentar sóst eftir tengiliðum fyrir næsta skólaár og vantar okkur því töluverðan fjölda af þátttakendum í verkefnið.
Það að vera tengiliður er verkefni sem aðstoðar skiptinema við að aðlagast íslensku samfélagi og gefur tengiliðum færi á að kynnast fólki frá öðrum löndum. Ef þig langar að bæta tungumálakunnáttu þína, getur þú óskað eftir skiptistúdent frá ákveðnu landi. Því er þetta kjörið tækifæri fyrir þá nemendur sem hyggjast stunda skiptinám, sem og annað nám erlendis í náinni framtíð, til að hefjast handa við að slípa viðkomandi tungumál.
Í byrjun september munum við byrja veturinn á hressum ratleik sem endar með bjórkvöldi í bænum. Þetta gefur þér færi á að kynnast skiptinemunum sem og öðrum tengiliðum við mjög skemmtilegar aðstæður. Alþjóðaskrifstofa og Stúdentaráð, í samvinnu við ESN Reykjavík, mun svo standa fyrir fleiri skemmtilegum viðburðum í vetur og verður það tilkynnt nánar síðar.
Verkefnið er stór þáttur í aðlögun skiptistúdentanna að háskólasamfélaginu og að íslensku samfélagi almennt.
Í ár viljum við getað veitt öllum skiptistúdentum tengilið og er þátttaka þín því mikils metin! Skráning fer fram á http://ask.hi.is/page/buddy
Ef þú hefur einhverjar spurningar er þér velkomið að hafa samband við mig.
Bestu kveðjur,
Sif H. Gröndal
Alþjóðafulltrúi Stúdentaráðs
sifgr@hi.is
777-6577
--------English version----------
Last couple of years the International Committee and the International Office of Education have coordinated a buddy-system for foreign students at HÍ.
The buddy- systems main goal is to strengthen the connection between foreign and regular students at HÍ and is a great way to broaden your horizon, improve your language skills and expand your circle of friends. If you wish to be a buddy for a foreign student from a certain country, you can ask for it and we will try to match your request.
Being a buddy is a lot of fun. The buddies can participate in all kinds of activities and parties (included the Thursday parties organized by ESN Reykjavik) that are organized specially for the foreign students.
This year we want to improve this so that all exchange students will have a buddy. Your participation is therefore highly valued. We want to match exchange students and buddies as soon as possible, that gives you the chance to get to know each other before the student arrives in Iceland. It is also good for the exchange student to have a contact person from the first day in Iceland, to have someone to ask questions like: “I think there is something wrong with the water? It smells really bad!”
Click on the following link to register http://ask.hi.is/page/buddy
You are also welcome to contact me if you have any questions.
Best regards,
Sif H. Gröndal
International Officer
sifgr@hi.is
777-6577
