Skiptar skoðanir eru meðal stúdenta Háskóla Íslands um mikilvægi málefna og í raun mikilvægi kosninganna í heild sinni, ef marka má viðmælendur student.is. Næstkomandi miðvikudag og fimmtudag verður kosið í stúdentaráð Háskóla Íslands, en eins og áður eru það Röskva og Vaka sem bjóða sig fram. Bæði nemendafélögin eru í óða önn að auglýsa starfsemi sína og þau málefni sem þau hyggjast vinna að á komandi skólaári.
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir nemendafélaganna til að kynna starfsemi sína virðast margir enn ófróðir um stefnur þeirra og starfsemi. Nú fer þó hver að verða síðastur að kynna sér hagsmunabaráttu Rökvu og Vöku en kjörklefar loka fimmtudagskvöldið 5.febrúar klukkan 17:00
| Attachment | Size |
|---|---|
| 221.96 KB |
