Það er mikið um að vera í stúdentapólitíkinni þessa dagana en kosningar til stúdentaráðs fara fram dagana 4. og 5.febrúar. Báðar fylkingarnar sem bjóða fram leggja ofuráherslu á að hækka námslánin.
Samkvæmt upplýsingum sem fengust frá Lánasjóði íslenskra námsmanna hafa nú rúmlega 5000 nemendur sótt um námslán fyrir tímabilið 2008-2009. Ekki var mögulegt að fá upplýsingar um hversu margir nemendur í heildina eru með námslán en ljóst að gríðarlega stór hluti þarf fjárhagslega aðstoð meðan á námi stendur.
Kristján Freyr Kristjánsson oddviti Vöku leggur ríka áherslu á að til aðgerða verði gripið sem allra fyrst svo stúdentar eigi möguleika á að stunda nám sitt hérlendis á mannsæmandi kjörum. Hann hefur áhyggjur af því að námsmenn leiti frekar í nám erlendis verði ekkert að gert, sem væri miður fyrir íslenskt samfélag.
Pétur Markan framkvæmdastjóri SHÍ og Röskvufélagi tók í sama streng og sagði aðgerða þörf strax. Hann bindur vonir við nýskipaðan menntamálaráðherra sem hafi haft hagsmuni stúdenta að leiðarljósi.
