Í tilefni Alþjóðlega bangsadagsins bauð Lýðheilsufélag læknanema við Háskóla Íslands börnum að koma með bangsana sína og dúkkur í læknisskoðun. Tilgangurinn með bangsaspítalanum er að kynna lækna og heilbrigðisstofnanir fyrir börnum í gegnum leik og þannig reyna að koma í veg fyrir vanlíðan og hræðslu þegar þau sjálf þurfa að leita læknis. Ekki skiptir minna máli að með þessu fá læknanemar tækifæri til að þjálfast í samskiptum við börn.
| Attachment | Size |
|---|---|
| 130.82 KB |
