Kosningar til stúdentaráðs og háskólaþings fara fram í vikunni. Aldrei hafa jafn margir haft kosningarétt og í ár en nemendur við HÍ eru nú um fjórtán þúsund talsins. Laganeminn Sigurður Kári Árnason skipar efsta sæti á lista Röskvu til stúdentaráðs. Sigurður Kári segir að helsta baráttumálið sé bætt kjör stúdenta, meðal annars með breytingum á Lánasjóði íslenskra námsmanna.

Ekki er óalgengt að þeir sem eru framarlega í stúdentapólitíkinni haldi stjórnmálavafstrinu áfram. Má þar nefna fyrrum Röskvuliðana, Katrínu Jakobsdóttur menntamálaráðherra og Dag B. Eggertsson oddvita Samfylkingarinnar í borgarstjórn. Sigurður Kári segist ekki stefna á embætti formanns stúdentaráðs enda sé hefð fyrir því að formaðurinn komi úr röðum þeirra sem eru á sínu seinna ári í stúdentaráði.

AttachmentSize
sigurdur_kari.gif720.81 KB