Háskóli Íslands student.is

Stúdent.is

Stúdent.is
Hversu vel hefurðu fylgst með kosningunum til Stúdenta- og Háskólaráðs?

Jóhann Jóhannsson, félagsfræði
Mjög lítið.

Ólafur Melsteð, viðskiptafræði
Hef ekkert fylgst með.

Anna Kristín Cartesegna, sálfræði.
Ekki nógu vel.

Hversu vel hefurðu fylgst með kosningunum til Stúdenta- og Háskólaráðs?

Silja Jónsdóttir, sálfræði
Eiginlega ekkert.

Martha María Einarsdóttir, félagsráðgjöf
Mjög lítið.

Jóhann Gunnarsson, bókasafns- og upplýsingafræði
Eiginlega ekki neitt.


No player is configured for a single video. Check the SWF Tools file handling settings.

Börn sem eiga hund hafa meira sjálfsálit

Niðurstöður rannsókna sem Jóhanna Reykjalín nemi í uppeldis- og menntunarfræðum hefur kynnt sér koma skemmtilega á óvart. Erindi hennar, Hundar og börn - leiðin að farsælu uppeldi, byggir á fyrstu niðurstöðum BA ritgerð hennar. Í ritgerðinni skoðar hún kenningar Diönu Baumrind um uppeldishætti foreldra sem eru leiðandi, skipandi, eftirlátssamir og afskiptalausir uppeldishættir. Jafnframt skoðar hún þrjár mismunandi aðferðir við að ala upp hund en þær aðferðir eru yfirráðstengd þjálfun, hvatningartengd þjálfun og þjálfun sem byggir á jákvæðri styrkingu.

Jóhanna á sjálf tvo hunda af tegundinni Griffon og fjögra og sex ára gamla stjúpsyni. "Auk þess að vera í námi í Háskóla Íslands lærir hún hundaþjálfun hjá Sheila Harpers International Dog Behavioral and Training School í Bretlandi. Skólinn er eins- og hálfs árs nám með tólf staðlotum. Hún flýgur út í viku á svona sex vikna fresti til að sækja námið." Þannig blandar hún saman uppeldis- og menntunarnámi með námi í hundaþjálfun. Jóhanna segist í daglegu tali vera kölluð Hanna en hjá hundavinum sínum Hunda-Hanna.

Viðburðir

Tinktúra í nærmynd

Hákon kennari er lukkudýrið okkar!

fleiri nemendafélög

Háskólaumræðan - þjóðfélagsumræðan

Í háskólaumræðuna voru fengin þau Ágúst Borgþór Sverrisson og ...