Einelti er alls staðar, hvort sem er í skólum, á vinnustöðum eða annars staðar í samfélaginu. Þetta segir Inghildur Einarsdóttir, deildarstjóri
hjá Vinnueftirlitinu, en þau Guðmundur Kjerúlf verkefnisstjóri fjölluðu um einelti og aðra erfiðleika á vinnumarkaði í hádegisfyrirlestri í Odda nýlega.

Fyrirlesarar ræddu meðal annars þau úrræði sem Vinnueftirlitið býður upp á þegar einelti eða önnur neikvæð hegðun á vinnustað er til skoðunar en þar er einkum um að ræða ráðgjöf, námskeið, heimsóknir og fyrirlestra. Auk þessa sinnir eftirlitið ýmsum öðrum þáttum sem snúa til dæmis að öryggismálum á vinnustöðum og starfsemi öryggisnefnda og öryggistrúnaðarmanna.

Atli Steinn Guðmundsson sat fyrirlesturinn og ræddi við fyrirlesarana.

AttachmentSize
Picture 1.gif90.15 KB