Gríðarleg mótmæli hafa verið vegna samstarfs Já við Egil Einarsson, sem oftast er nefndur Gillzenegger, um ritun símaskráarinnar. 784 hafa skráð sig í hóp óánægðra á Facebook og svipaður fjöldi á mótmælalista á netinu. Yfir 600 manns hafa skráð sig á síðu þeirra sem styðja Egil í þessu verkefni. Samkvæmt fréttum í fjölmiðlum er aðkomu Egils að símaskránni helst mótmælt vegna meintrar kvenfyrirlitningar og bloggfærslu þar sem hann skrifaði niðrandi um feminista og þingmenn. Þrátt fyrir þessi mótmæli hyggst Já ekki slíta samstarfi við Egil. Nokkrir stúdentar voru spurðir álits á Háskólatorgi. 

AttachmentSize
Picture 1.png143.3 KB