Hann starfaði sem listmálari í Osló og hjólaði allra sinna ferða þar til fyrir átta árum þegar Ingþór Hrafnkelsson slasaðist alvarlega eftir að hafa fengið slæmt högg á hnakkann. Við tók heilll mánuður í öndunarvél á gjörgæslu og hann sneri aftur til lífsins. Batinn kemur hægt og sígandi.

 

Í sumar fékk hann stuðning Sjúkratryggingasjóðs til þess að fjárfesta í reiðhjóli, sem gerir hann ferðafrjálsan. Hann fékk örlítla aðstoð við að stilla hjólið svo hentaði fötluninni og hjólaborgin Reykjavíkur varð hans. Í fyrstu voru ferðirnar stuttar, um hálftími, en í dag ferðast hann á hjólinu í meira en tvo tíma í  senn og kjarkur, þrek og þor vex með hverjum deginum.

Sesselja Traustadóttir ræddi við hjólakappann Ingþór Hrafnkelsson.

 

Myndin er lokaverkefni Sesselju í áfanganum Sjónvarpsþættir og heimildarmyndir, sem Þorsteinn J. Vilhjálmsson sjónvarpsmaður sér um.  Áfanginn er kenndur í meistaranámi í blaða- og fréttamennsku.

AttachmentSize
Ingthor1.jpg2.18 MB