Á dögunum var haldin kínversk Kung Fu sýning í Háskólabíói á vegum Konfúsíusarstofnunarinnar Norðurljós. Þær austurlensku bardagalistir sem eru stundaðar á Íslandi koma flestar frá Kína en sögu þeirra má rekja nokkur þúsund ár aftur í tímann. Blásið var til sýningarinnar í tilefni kínverska nýársins og fréttamaður student.is fylgdist með ásamt troðfullum sal af áhorfendum mættu til að berja dýrðina augum. 

AttachmentSize
kung fu2.jpg26.31 KB