Flestir ef ekki allir sem komnir eru til ára sinna hafa einhvern tíma fengið sent ástarbréf. Sunna Dís Másdóttir, meistaranemi í Hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands, er að safna slíkum bréfum og er verkefnið unnið í samstarfi við Braga Þorgrím Ólafsson, sagnfræðing hjá handritadeild Landsbókasafns Íslands – Háskólasafns.
Guðrún Hálfdánardóttir ræddi við þau Sunnu Dís og Braga um verkefnið og gluggaði í heimildir um hvernig slík bréf eiga að vera uppsett.
Þeir sem hafa áhuga á að veita aðgang að bréfum sínum eru hvattir til að hafa samband við þau Sunnu Dís og Braga í gegnum netfangið astarbrefoskast@gmail.com
| Attachment | Size |
|---|---|
| 179.11 KB |
