Vökuliðar komu saman á Hverfisbarnum um klukkan 9 í gærkvöldi til þess að fylgjast með úrslitum stúdentaráðskosninganna. Þegar leið á kvöldið var orðið fullt út úr dyrum og voru frambjóðendur himinlifandi yfir mætingu sinna stuðningsmanna. Stemmningin var gríðarlega góð enda kom á daginn að Vaka sigraði í kosningunum, fékk rúmlega 52% og fimm menn i stúdentaráð.
| Attachment | Size |
|---|---|
| 82.25 KB |
