Appelsínugulur litur hefur heldur betur sett mark sitt á stúdentaráðskosningar Háskóla Íslands og bæst í lið með rauðum og gulum litum Röskvu og Vöku. Þar er á ferð nýtt framboð sem gengur undir nafninu Skrökva, félag flokksbundinna framapotara. Að sögn þeirra Skrökvuliða fylgir hugmyndum þeirra heilmikil alvara þó þær séu settar fram í formi háðsádeilu.
| Attachment | Size |
|---|---|
| 804.14 KB |
