Fjölmenni var í veðurblíðunni á Hvolsvelli þegar Hásskólalestina bar að garði. Bæjarbúar og nærsveitamenn fjölmenntu í Grunnskólann og kynntu sér hina ýmsu starfsemi sem Háskólinn hefur uppá að bjóða. Áhuginn leyndi sér ekki hjá ungu kynslóðinni og ekki ólíklegt að þarna innan um leynist hugsanlega vísinsndamenn framtíðarinnar. Teiknirólan vakti sérstaka athygli.
