Stúdentar við Háskóla Íslands virðast almennt nokkuð sammála um að æskilegt sé að bjóða upp á kennslu við skólann í sumar vegna takmarkaðra atvinnumöguleika en eins og student.is greindi frá í gær hefur Háskólaráð lýst yfir vilja til að leita allra leiða til að svo megi verða. Þetta er þó allt háð fjárveitingavaldinu eins og Kristín Ingólfsdóttir rektor sagði í samtali við vefinn. Þrír nemendur sem Atli Steinn Guðmundsson ræddi við fóru ekki í launkofa með skoðanir sínar á málinu.

AttachmentSize
sumarannir.gif45.92 KB