Hrefna Garðarsdóttir skólaliði sinnir mikilvægu starfi í Stykkishólmi. Þegar Háskólalestin brunaði í gegnum bæinn á dögunum hittum við hana á kennarastofu grunnskólans þar sem hún stóð yfir girnilegum grautarpotti. Kraftur og útgeislun samstarfsfólks hennar er víst Hrefnu að þakka því dag hvern eldar hún hafragraut ofan í kennaraliðið.
