Ólík aðferðafræði og mismunandi leiðir að settu marki er fyrst og fremst það sem skilur að í hinni eilífu baráttu stúdentafylkinganna Vöku og Röskvu. Um þetta voru efstu menn á lista fylkinganna sammála þegar student.is leitaði viðbragða þeirra um hvað væri í raun deilt.

Aðalbjörg Ósk Gunnarsdóttir og Sigurður Kári Árnason voru tekin tali og málið borið undir þau. Enn fremur var hugur þeirra kannaður gagnvart því hvaða mann hinn dæmigerði liðsmaður úr andstæðri fylkingu hefði að geyma.

AttachmentSize
Studentaradskosningar.gif190.34 KB