Stefán Sölvi Pétursson er fjórði sterkasti maður í heimi, ef marka má úrslit aflraunakeppninnar Sterkasti maður heims nú í haust. Hann er aðeins 24 ára og hefur náð sjaldgæfum árangri í aflraunum síðustu 5 ár.

Samúel Örn Erlingsson heimsótti Stefán Sölva í afar sérstaka æfingastöð hans og félaga hans í Hafnarfjarðarhrauni, og borðaði svo með honum ,,léttan" kvöldverð.

 

Í Æfingastöðinni æfa stórir og sterkir menn og skemmta sér konunglega. Þarna eru leikföng eru stærri en almennt gerist og kíló eru mæld í hundruðum. Með Stefáni á æfingu er einn efnilegustu aflraunamanna heimsins, hinn 22 ára Hafþór Júlíus Björnsson.

 

Myndin er lokaverkefni Samúels Arnar í áfanganum Sjónvarpsþættir og heimildarmyndir, sem Þorsteinn J. Vilhjálmsson sjónvarpsmaður sér um.  Áfanginn er kenndur í meistaranámi í blaða- og fréttamennsku.

AttachmentSize
Picture 2.png85.78 KB