Vaka félag lýðræðissinnaðra stúdenta sigraði í kosningunum til stúdentaráðs og Háskólaþings sem fram fóru í gær og fyrradag.

Vaka fékk k 2342 atkvæði eða 52,25% atkvæða til stúdentaráðs og 5 fulltrúa en Röskva 2149 atkvæði eða 47,75 % og 4 fulltrúa. Vaka tekur því við stjórnartaumunum í SHÍ af Röskvu.

Til háskólaþings fékk Vaka 2298 atkvæði eða 51,26 % og Röskva 2185 atkvæði eða 48,74 %.

AttachmentSize
Studentaradskosningar.gif190.34 KB