Framkvæmdir stöðvaðar
Eftir að stjórnarmeðlimir Soffíu sátu fund með Guðmundi R. Jónssyni, Sviðsstjóra Hugvísindasviðs, hefur hann ákveðið að framkvæmdir á þriðju hæð Aðalbyggingar og þá sérstaklega framkvæmdir á Soffíubúð, skuli stöðvaðar þar til Ástráður Eysteinsson, Forseti Hugvísindasviðs kemur aftur til landsins, aðstaða nemenda hafi verið tekin til umfjöllunar og niðurstaða hafi fengist í málinn.
Smásigurskveðjur!
Egill And.
Vefsíðustjóri Soffíu
Þriðjudagur, 25. Nóvember 2008
Reykjavík
____________________________________________________________
Soffíubúð kemst í fréttirnar
www.smugan.is hefur greint frá málum Soffíubúðar í vefriti sínu. Greinina má lesa í heild sinni á: http://smugan.is/frettir/frettir/nr/115
Einnig hefur mbl.is sýnt málinu áhuga eins og má sjá á http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/11/25/haskolanemar_i_setuverkfalli/
_____________________________________________________________
Mótmælendabréf og undirskriftir afhent í dag
Í hádeginu í dag var mótmælendbréfi ásamt undirskriftarlista afhent Kristínu Ingólfsdóttur, Rektor Háskóla Íslands, Ástráði Eysteinssyni, Forseta Hugvísindasviðs og Guðmundi Ragnar Jónssyni, Sviðsstjóra Hugvísidasviðs. Ástráður er hinsvegar því miður ekki staddur á landinu um þessar mundir og munum við þess vegna væntanlega þurfa að bíða fram á miðvikudag eða lengur til að fá einhver svör frá honum
En nú eru hlutirnir komnir á skrið og bíðum við spennt eftir svari frá þessum aðilum. En við nemendur Soffíu erum ekki ein á báti í baráttu okkar. Kennararnir okkar hafa einnig tekið þessu illa og hafa tekið það upp á sína eigin arma að skrifa sjálfir bréf þar sem þeir mótmæla þessum aðgerðum. Vill stjórn Soffíu nota tækifærið og þakka þeim kærlega fyrir stuðningin.
Um leið og eitthvað skýrist í málinu verður greint frá því hér á vefsíðu Soffíu.
En lífið er ekki eintómt hark og mótmæli. Því í dag verður farinn vísindaferð til Samfylkingarinnar eins og allir ættu að vera löngu búnir að fá tölvupóst um, minnum við hér á að mæting er í Alþingishúsinu við nýja inganginn. Óskum við öllum góðrar skemmtunar.
Enn og aftur Baráttukveðjur
Egill And.
Vefsíðustjóri Soffíu
Föstudagur, 21 nóvember 2008
Reykjavík
____________________________________________________________
Niðurstöður fundar með Fiskinum og Stúdentaráði
Nemendaráð Soffíu var að koma af fundi með nemendaráði Fisksin, félagi guðfræðinema og fulltrúa stúdentaráðs. Á fundinum náðist niðurstaða um það að Fiskurinn og Soffía munu snúa bökum saman og berjast jafnfætis gegn þeim aðgerðum sem nú eru í framkvæmd gegn kaffistofum nemendafélagana. Einnig komu fram ný rök gegn færslu kaffistofa í kjallara aðalbyggingar. Kom til tals að kalla til jafnréttisfulltrúa Háskólaráðs þar sem aðgengi fyrir fatlaða í kjallara Aðalbyggingar er sárlega ábótavant.
Nemendaráðin tvö ætla nú að koma sér saman og skrifa greinargerð þar sem þessum aðgerðum verði harkalega mótmælt. Greinargerðin verður svo send til allra helstu toppa innan Háskóla Íslands og Hugvísindasviðs þar sem á við
Á morgunn miðvikudag mun nemendaráð Soffíu ganga til funds við kennara innan heimsspekinar, er þá vonandi að þeir geti veitt okkur eitthverja liðsinni eða komið með góðar ábendingar til okkar í baráttu okkar.
Baráttukveðjur
Egill And.
Þriðjudagur, 18. Nóvember 2008
Reykjavík
_________________________________________________________________
Vefsíða Kominn
Eftir nokkurt hark er nú vefsíða Soffíu, félags heimsspekinema til. Þetta kemur þó ekki á miklum hamingjutímum eins og flestum er nú kunnugt um. En við munum að sjálfsögðu upplýsa nemendur um aðstöðuna um leið og við getum brugðið eitthverju ljósi á atburði.
Baráttukveðjur...
Egill And.







