Háskóli Íslands student.is

Stúdent.is

Stúdent.is

Hvað finnst þér best við íslenska sumarið?

Maddalena Tovazzi á 2. ári í ensku: Ætli það sé ekki hvað sumarið er bjart. Mér líkar líka vel við veðrið hérna, það er ekki of heitt.
Auður Kamma Einarsdóttir starfsmaður í Háskóla Íslands: Það er frekar hressandi veður hérna á Íslandi! Það er samt ansi gaman hvað sumarið er bjart, ég verð að segja það.
Freyr Björnsson á 3. ári í félagsfræði: Íslenska sumarið er svo passlegt.

Ætlar þú að kíkja við rannsóknarskýrslu ráðstefnu HÍ?

Eva Eiríksdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei, er í prófum
Helga Ingibjörg Guðjónsdóttir nemi í ferðamálafræði: Nei því miður kemst ég ekki vegna prófum.
Juan Serrano mastersnemi í íslensku bókmenntafræði: Nei ég ætla ekki að fara, ég er of upptekin, en mér finnst þetta rosalega áhugavert efni.

Ritstjórnarstefna

Printer-friendly version

Ritsjórnarstefna Stúdentablaðsins

Miklar breytingar hafa orðið á Stúdentablaðinu.
Í ár verða breyttar áherslur og útlit blaðsins verður með breyttu sniði.

 

Ekkert verður blaðinu óviðkomandi. Málefni stúdenta verða auðvitað til umfjöllunar, en blaðinu er ekkert óviðkomandi.
Við munum gera öllum helstu þjóðfélagsmálum skil og fjalla um allt milli himins og jarðar sem snertir almenning.

 

Markmið mitt sem ritstjóri er að blaðið höfði til breiðs lesendahóps og fái góða lesningu og mikla umfjöllun í þjóðfélaginu.
Valinkunnir blaðamenn ásamt fjölmiðlafróðum háskólanemum hafa gengið til liðs við blaðið og munu kraftar þeirra án efa hjálpa til við að auka hróður þess.

Ritstjórnarstefnan verður metnaðarfull, framsækin og óháð.
Blaðið verður fjölbreytt og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi við lestur blaðsins.
Við ætlum okkur stóra hluti í þágu blaðsins.

 

Fyrsta blað skólaársins mun koma út á fyrstu dögum októbermánaðar og verður það síðan gefið út mánaðarlega að undanskildum janúarmánuði 2010.

 

Ef þú hefur áhuga á almennri þjóðfélagsumræðu, mannlífi og gagnrýnni en jafnframt sanngjarnri umræðu þá er Stúdentablaðið blað fyrir þig. 

 

Hægt verður að senda nafnlaus skilaboð um fréttaskot eða áhugaverð málefni á netfangið aslaugbaldurs@simnet.is og verður farið með allar slíkar ábendingar sem trúnaðarmál. 

Viðburðir

Maður vikunnar

Helgi Möller Hugbúnaðarsérfræðingur er maður vikunnar

Maður vikunnar

Vinnur við forritun á Uglunni