Alþjóðafulltrúi er skipaður ár hvert til þess að hafa yfirumsjón með tengiliðaverkefni SHÍ og Alþjóðaskrifstofu en tengiliðaverkefnið er talsvert umfangsmikið og einnig skemmtilegt. Í starfi alþjóðafulltrúa felst annars vegar að finna skiptinemum við HÍ íslenska tengiliði á meðan þeir dvelja hérlendis og hins vegar að búa þannig um hnútana að skiptistúdentar sem ekki fara heim um jólin hafi kost á að snæða jólakvöldverðinn með íslenskri fjölskyldu.
Alþjóðafulltrúi er þar að auki tengiliður inn í Alþjóðanefnd SHÍ.
Alþjóðafulltrúi Stúdentaráðs 2010-2011 er Sif Hauksdóttir Gröndal. Ef þú þarfnast aðstoðar eða ráðgjafar alþjóðafulltrúans getur þú annað hvort sent henni tölvupóst á netfangið sifgr@hi.is.







