Árskýrsla SHÍ 2009 - 2010
Ársskýrsla SHÍ 2008-2009 / drög
KOSNINGAR 2008
Kosið var til Stúdentaráðs og Háskólaráðs dagana 6. og 7. febrúar á Háskólasvæðinu árið 2008. Röskva bar sigur úr býtum annað árið í röð í báðum kosningum og fékk því 11 stúdenta inn í Stúdentaráð og einn stúdent kjörinní Háskólaráð. Vaka fékk 9 stúdenta inn í Stúdentaráð og einn stúdent kjörinn í Háskólaráð. Alls voru 9.939 nemendur á kjörskrá og 3.446 greiddu atkvæði. Auðir seðlar voru 78 og 8 ógildir.
Í Stúdentaráði voru úrslitin eftirfarandi:
Röskva fékk 1.692 atkvæði eða 50,09%
Vaka fékk 1.686 atkvæði eða 49,91%
Í Háskólaráði voru úrslitin eftirfarandi:
Röskva fékk 1.683 atkvæði eða 50,09%

STÚDENTARÁÐSLIÐAR
Í Stúdentaráð starfsárið 2008-2009 voru kjörnir eftirfarandi stúdentar í stafrófsröð:
Atli Bjarnason, Vaka
Bergþór Snæbjörnsdóttir, Röskva
Björg Magnúsdóttir, Röskva, formaður SHÍ
Elín Ósk Helgadóttir, Röskva
Finnborg Salome Steinþórsdóttir, Röskva
Fjóla Einarsdóttir, Vaka*
Haukur Hólmsteinsson, Röskva
Hildur Björnsdóttir, Vaka
Hrönn Guðmundsdóttir, Röskva, ritari SHÍ
Ingólfur Birgir Sigurgeirsson, Vaka
Kári Hólmar Ragnarsson, Röskva, varaformaður SHÍ
Kristján Freyr Kristjánsson, gjaldkeri SHÍ
María Finnsdóttir, Vaka
Ólafur Páll Vignisson, Vaka
Pétur Markan, Röskva, framkvæmdastjóri SHÍ
Rakel Eva Sævarsdóttir, Vaka**
Sigrún Ingibjörg Gísladóttir, Vaka
Sigurlaug María Hreinsdóttir, Röskva
Þorleifur Örn Gunnarsson, Röskva
Þórunn Elísabet Bogadóttir, Röskva
* Atli Birkir Kjartansson er fastur fulltrúi fyrir Fjólu Einarsdóttur.
** Magnús Már Einarsson er fastur fulltrúi fyrir Rakel Evu Sævarsdóttur.
*** Stúdentaráð við gamla Kennaraháskóla Íslands átti tvo fulltrúa á fundum SHÍ með málfrelsis- og tillögurétt.
ÁLYKTANIR SHÍ Á ÁRINU
Að neðan eru ályktanir eða fréttatilkynningar sem Stúdentaráð eða stjórn þess sendi út á starfsárinu. Venjulega fengu allir fjölmiðlar ályktanir og tilkynningar sendar en einnig þeir ráðamenn sem hlut áttu að máli. Þar ber helst að nefna stjórnsýslu HÍ, borgaryfirvöld, Alþingismenn eða ríkisstjórn.
Ályktun um uppbyggingu stúdentaíbúða, 31. janúar 2008
Stúdentaráð Háskóla Íslands hvetur nýjan meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur til að vinna hratt og örugglega að uppbyggingu Stúdentagarða eins og meirihlutinn hefur lýst yfir að hann hyggist gera. Í langan tíma hefur legið fyrir áætlun um uppbyggingu um 600 íbúða sem Stúdentaráð og Félagsstofnun Stúdenta hafa unnið að innan starfshóps borgarinnar. Vegna tíðra meirihlutaskipta í borginni hefur endanleg ákvarðanataka tafist með tilheyrandi óþægindum fyrir stúdenta.
Borgarráð vísaði áætluninni til Skipulagsráðs á fundi sínum á fimmtudag. Það er von Stúdentaráðs að borgin samþykki áætlunina snarlega og nýti þá breiðu pólitísku sátt sem um uppbygginguna er.

Ályktun um vandvirka starfshætti kennara, 11. apríl 2008
Að vera leiðandi afl í leitandi þjóðfélagi er eitt af lykilhlutverkum Háskóla Íslands sem og að vera eitt af aðalseglum þjóðarskútunnar sem siglir undan vindum í átt að enn bjartari tímum. Ef Háskólinn á að rækja það hlutverk svo sómi sé af þarf hann að sýna fordæmi sem komandi kynslóðir eiga að tileinka sér.
Stúdentaráð Háskóla Íslands tekur undir með rektor Kristínu Ingólfsdóttur þegar hún minnir kennara og nemendur á að temja sér fagleg vinnubrögð í hvívetna. Stúdentaráð Háskóla Íslands minnir á að líkt og stúdentum er gert að vinna eftir akademískum vinnubrögðum gildi slíkt hið sama um kennara Háskólans.
Stuðningsyfirlísing með ávarpi rektors, 16. júní 2008
Stúdentaráð Háskóla Íslands tekur heilshugar undir ávarp rektors HÍ, Kristínar Ingólfsdóttur, við stærstu háskólaútskrift Íslandssögunnar, laugardaginn 14. júní síðastliðinn. Þar kom m.a. fram að stefna Háskólans sé að sækja aukið fjármagn til metnaðarfullra verkefna til alþjóðlegra styrktarsjóða og fyrirtækja.
SHÍ fagnar því að rektor hafi með þessu lagt áherslu á aðrar leiðir til fjármögnunar Háskóla Íslands en upptöku skólagjalda stúdenta.
Þá hvetur SHÍ stjórnvöld til þess að taka undir með Háskólarektor og styðja ötullega Háskólann til enn frekari afreka á alþjóðavísu með því að veita honum aukið fjármagn.
Fréttatilkynning, 2. júlí 2008
Bryndís Björgvinsdóttir, meistaranemi í þjóðfræði, hefur verið ráðin ritstjóri Stúdentablaðsins skólaárið 2008-2009. Bryndís hefur víðtæka reynslu af ritstjórnarstörfum og hefur meðal annars gefið út barnabók, ritstýrt Beneventum, skólablaði MH, skrifað í lesbók Morgunblaðsins, ritað pistla og greinar á vefritid.is, kistan.is og hugsandi.is. Hún hefur ritstjórastörf í byrjun september. „Ég tel mikilvægt að blöð leyfi sér að vera pólitísk, gagnrýnin og taki afstöðu,“ segir Bryndís en hún vill sjá hlaðið Stúdentablað sem kallar ekkert ömmu sína.

Ályktun um þverrandi styrk borgaryfirvalda til FS, 3. júlí 2008
Stjórn Félagsstofnunar stúdenta hefur ákveðið að hækka leigu á stúdentagörðum um 5,25% og tekur sú hækkun gildi með nýjum leigusamningum í ágúst og september 2008. Ástæðan er rakin beint til þverrandi stuðnings Reykjavíkurborgar við Félagsstofnun stúdenta en á síðustu fjórum árum hefur sá stuðningur dregist saman um því sem nemur 24 milljónum. Það er ömurlegt að í eins hörðu ári og nú er skuli borgaryfirvöld sauma jafnhart að stúdentum eins og raun ber vitni. Stúdentaráð Háskóla Íslands skorar eindregið á borgaryfirvöld að dusta nú rykið af velferðarplöggum og leysa um leið stúdenta úr snörunni.
Hvatningarorð til borgarfulltrúa í RVK, 2. september 2008
Ágæti borgarfulltrúi
Vísað er í tillögu sem lögð var fram á fundi Borgarráðs af borgarfulltrúum 28. síðasta mánaðar:
Borgarráð samþykkir að þeir námsmenn sem eiga heima í Reykjavík, þó svo þeir hafi lögheimili í sveitarfélögun utan byggðasamlagsins, fái frítt í strætó eins og aðrir Reykvíkingar í námi. Markmiðið með því að bjóða ókeypis í strætó fyrir námsmenn er að minnka umferð einkabíla í borginni. Því ætti það að vera sama hvert lögheimili bílstjóranna er, við viljum að þeir noti strætó.
Stúdentaráð Háskóla Íslands hvetur ráðið til þess að samþykkja tillöguna. Algerlega óásættanlegt er að stúdentum sé mismunað eftir því hvar þeir eiga lögheimili. Stúdentaráð bendir líka á að verkefninu frítt í strætó var einkum ætlað að auka notkun strætó og lykilatriði í þeirri viðleitni er að íbúar höfuðborgarsvæðisins hafi jákvætt viðmót gagnvart strætó. Núverandi stefna útilokar stóra hópa stúdenta m.a. erlenda skiptinema. Stúdentaráð verður vart við mikla óánægju meðal stúdenta vegna þeirrar mismununar sem nú á sér stað og þar með skaðast ímynd strætó – og reyndar sveitarfélaganna sjálfra.
Stúdentaráð hvetur sveitarfélögin sem standa að Strætó bs. að veita öllum nemendum frítt í strætó án tillits til lögheimilisskráningar. Þannig, og aðeins þannig, nást markmið verkefnisins.
F.h. SHÍ,
Björg Magnúsdóttir, formaður og Kári Hólmar Ragnarsson,varaformaður
Áskorun til allra sveitarfélaga landsins (fyrir utan þátttakendur í frítt-í-strætó verkefninu), 12. september 2008
Til sveitarfélaga frá Stúdentaráði Háskóla Íslands:
Það hlýtur að vera kappsmál hvers sveitarfélags að búa þannig um hnútana að hver einstaklingur vilji ekki skera viljandi á heimataug sína þó svo viðkomandi hafi hlaupið heimdranganum. Borið hefur á því að stúdentar búsettir úti á landi í námi á höfuðborgarsvæðinu færi lögheimili sitt til Reykjavíkur með það eina markmið í huga að fá ókeypis strætókort þar sem eingöngu stúdentar í 6 sveitarfélögum eiga rétt á slíku.
Stúdentaráð hvetur sveitarfélög á landsbyggðinni heilshugar til þess að styðja duglega við bakið á stúdentum innan sinna vébanda og greiða strætókort fyrir þá sem dvelja vetrarlangt á höfuðborgarsvæðinu.
Ályktun vegna viðbragða LÍN og stjórnvalda við vanda námsmanna erlendis, 2. nóvember 2008, 2. nóvember 2008
Stúdentaráð Háskóla Íslands fagnar því að ríkistjórn landsins skuli bregðast skjótt við þeim aðkallandi vanda sem íslenskir námsmenn etja við þessa dagana, sérstaklega þeir stúdentar sem stunda nám sitt erlendis. Stúdentaráð fagnar því að menntamálaráðherra hlusti á kröfur stúdenta og taki mið af þeim tillögum sem stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna lagði til í formi neyðarúrbóta á þeim döpru aðstæðum sem skapast hafa í því fjármálakrísum sem gengið hafa yfir heimsbyggðina undanfarnar vikur.
Stúdentaráð fagnar því sérstaklega að íslenskir námsmenn erlendis eigi von á 23% hækkun framfærslulána sinna miðað við áður gerða samninga og því að tekjutenging þeirra sem sæki um námslán vorönn 2009 verði lækkuð um helming sem mun auðvelda einstaklingum af vinnumarkaði að hefja háskólanám. Þó þessar umbætur séu tilteknar eru einnig gerðar frekari breytingar á úthlutunarreglum sjóðsins sem koma stúdentum til góða nú þegar harðnað hefur á dalnum. Stúdentaráð gleðst yfir því að ríkisstjórn Íslands skuli standa vörð um Lánasjóðinn og veita stúdentum nauðsynlega aðstoð. Það veit á gott.
Fréttatilkynning: sameiginlegt bréf námsmannahreyfinga, 14. nóvember 2008

Námsmenn taka höndum saman
Undirritaðar námsmannahreyfingar á Íslandi óska eftir fundi með menntamálanefnd Alþingis til þess að ræða alvarlega stöðu íslenskra námsmanna og fá svör við neðangreindum atriðum.
Á óvissutímum eru uppi ólík sjónarmið um hvaða aðgerðir ráðamenn landsins skuli grípa til þegar kemur að stefnumótun þjóðarinnar til framtíðar og hvernig megi leiða þjóðina úr þeim fjárhagslegu ógöngum sem nú blasa við. Það gefur augaleið að ákvarðanir ráðamanna næstu daga og vikur koma til með að hafa bein áhrif á framtíð okkar námsmanna sem og landsmanna allra.
Undirritaðir fulltrúar námsmannahreyfinga á Íslandi hafa áhyggjur af því að framtíðarhagur og velferð umbjóðenda sinna gleymist í rokinu þannig að þeim verði ekki best borgið í íslensku samfélagi. Ungt fólk og stúdentar neyðist því til að flytja búferlum til annarra landa sem bjóða upp á betri kosti en Ísland en eins og skoðanakannanir og fjölmiðlar hafa sýnt er sú þróun þegar í farveginum. Námsumhverfi og menntakerfi á Íslandi verður að vera tryggt svo námsmenn geti með góðu móti búið hér, annars er hætt við því að stór hluti sjái hag sinn í brottflutningi til annarra landa þar sem öryggi á atvinnumarkaði og í samfélagi er meira en hérlendis. Námsmenn og ungt fólk er sá hópur þjóðarinnar sem á hvað auðveldast með að flytja á erlendar slóðir til frambúðar en á sama tíma hópur sem ráðamenn ættu að gera hvað mest til þess að halda innan landsteinanna.
Til að efla hagvöxt og koma á stöðugleika í samfélagi er algjört grundvallaratriði að menntunarstig landsins haldist hátt og fari stigvaxandi. Það er lykilatriði að nægt framboð sé af ungu og menntuðu fólki úti á vinnumarkaði svo það geti lagt þekkingu sína, menntun og nýsköpun á vogarskálar við uppbyggingu þjóðfélagsins á nýjan leik.
Samstaða ríkir meðal námsmanna og beiðnir okkar beinast til stjórnvalda. Við óskum eftir skýrum svörum og stefnu um málefni námsmanna landsins þar sem framtíð okkar er óviss. Óskir okkar varða grunnstoðir- og þarfir námsmanna þ.e. Lánasjóð íslenskra námsmanna, háskóla landsins, atvinnumöguleika ungs fólks og húsnæði.
Óskirnar eru eftirfarandi:
1. Að hlúið verði áfram að menntakerfi þjóðarinnar og að þjónustustig háskóla og gæði kennslu verði ekki skert þegar aukinn fjöldi námsmanna sækir nám sitt þangað.
2. Að þjónustustig Lánasjóðs íslenskra námsmanna verði ekki skert og að sjóðurinn haldi áfram að tryggja framfærslu námsmanna á meðan á námi stendur skv. 1. grein laga Alþingis um LÍN.
3. Að mánaðarlegar greiðslur verði teknar upp á vegum LÍN til þess að stúdentar þurfi ekki að fá yfirdráttarlán frá bönkunum á tæplega 20% vöxtum fyrir eftirágreiddu láni úr sjóðnum.
4. Að ríkið og LÍN endurskoði grunnframfærslu og reikni hana út miðað við raunverulegt verðlag nauðþurfta í þjóðfélaginu. Núverandi grunnframfærsla LÍN er ekki nægilega há til að stúdentar geti séð sér farborða með henni einni saman. Þeir hafa þurft að vinna með námi og leggja fyrir sumarlaun til að ná endum saman. Kúvending á vinnumarkaði hefur gjörbreytt tekjumöguleikum stúdenta með námi og að sumri sem nauðsynlegt er að bregðast við.
5. Að háskólar á landinu taki upp námskeið og kennslu yfir sumartímann fyrir þá stúdenta sem fá ekki vinnu. Að öðrum kostum neyðast atvinnulausir stúdentar til þess að sækja um atvinnuleysisbætur frá ríkinu.
6. Að efla og styrkja Nýsköpunarsjóð námsmanna og sporna þannig við auknu atvinnuleysi og ýta undir framtakssemi námsmanna.
7. Að ríkisstjórn og sveitarfélög styðji rækilega við uppbyggingu nýrra stúdentagarða og efni þá samninga sem þegar hafa verið undirritaðir. Fleiri hundruð stúdenta bíða eftir stúdentahúsnæði og þeim mun fjölga þar sem æ fleiri námsmenn sjá fram á mikla fjárhags- og greiðsluörðugleika.
8. Að stjórnvöld taki höndum saman við aðra Íslendinga við að byggja upp samfélag grundvallað á þekkingu, jafnrétti, félagslegu réttlæti og manngildi.
Undir þetta ritar Stúdentaráð Háskóla Íslands, Stúdentaráð Háskólans í Reykjavík, Stúdentaráð Kennaraháskóla Íslands, félag stúdenta við Háskólann á Akureyri, Listaháskóli Íslands, Stúdentafélag Háskólans á Hólum, Samband íslenskra námsmanna erlendis og Samband íslenskra framhaldsskólanema.
Fréttatilkynning SHÍ f.h. íslenskra námsmanna, 30. nóvember 2008
Stúdentar og námsmenn á Íslandi minna á afhjúpun menntavita mánudaginn 1.
desember kl. 11:00 á Austurvelli. Þar lesa fulltrúar stúdenta opið bréf
til Alþingis og ríkisstjórnar og hvetja til aðgerða sem snerta námsmenn.
Hér er dagskráin í heild sinni.
Fyrir hönd stúdenta og námsmanna á Íslandi, SHÍ.
Ályktun vegna niðurskurðartillaga ríkisstjórnar, 14. desember 2008
Þá er ljóst að það sér á svörtu. Samkvæmt sparnaðartillögum ríkisstjórnar verða fjárlög til Lánasjóðs íslenskra námsmanna skert verulega og til Háskóla Íslands þeirri upphæð sem nemur áður samþykktum rannsóknarsamningi. Stúdentaráð gerir alvarlegar athugasemdir við hvort tveggja þar sem ríkisstjórn virðist hundsa þá staðreynd að þegar kreppir að sækir verulegur fjöldi Íslendinga sér menntun í háskóla sem brýnir þörf Lánasjóðsins verulega. Nýjustu tölur sýna að sexföldun er í skráningu í grunn- og framhaldsnám HÍ á vorönn miðað við í fyrra. Af hverju gera forsendur fjárlaga ráð fyrir aðeins 5% fjölgun námsmanna á lánum þegar fyrir liggur að þeim muni fjölga um 20 eða jafnvel 30 prósent þegar aukinn fjöldi hefur nám, atvinnutækifæri gufa upp og baklönd verða ótryggari fjárhagslega? Af hverju hundsar ríkisstjórnin sína eigin stefnumörkun um eflingu menntunarstigs þjóðarinnar og þá tölulegu staðreynd að menntunarstig Íslendinga rétt hangir í meðallagi miðað við nágrannaþjóðir okkar?
Einnig gerir Stúdentaráð athugasemd við niðurskurð við Háskóla Íslands sem nemur fjárhæð rannsóknarsamnings sem menntamálaráðherra hefur gert við skólann. Sterkasta andsvar við áföllum í efnahag- og atvinnulífi er að efla menntun, rannsóknir og nýsköpun eins og fulltrúar stúdenta hafa ítrekað bent á undanfarið.
Fyrir síðustu alþingiskosningar lofuðu allir stjórnmálaflokkar að efla lánasjóðskerfið. Vissulega standa Íslendingar fyrir breyttum aðstæðum og rúmlega 20.000 stúdentar landsins eru engin undantekning. Það er þó makalaust að þegar stúdenta- og námsmannahreyfingar landsins hafa æ ofan í æ talað fyrir nauðsyn þess að fjármagn til LÍN verði ekki skert og hlúið verði almennilega að háskólum verði niðurstaðan eins og raun ber vitni – verulegur niðurskurður sem og váleg skilaboð ríkisstjórnar til stúdenta. Stúdentaráð Háskóla Íslands fer fram á að stjórnvöld endurskoði afstöðu sína.
Sameiginleg ályktun námsmanna- og stúdentahreyfinga landsins um LÍN, 17. desember 2008
Undirritaðar náms- og stúdentahreyfingar gera stórvægilegar athugasemdir við sparnaðartillögur ríkisstjórnar. Bæði eru fjárlög til LÍN skert því sem nemur 1.360 milljónum og ríkisútgjöld til menntunar, háskóla, rannsókna og framhaldsskóla duglega dregin saman.
Ríkisstjórn reiknar með 5% aukningu í umsóknum námslána þegar aðsókn í menntun á háskólastigi er í sögulegu hámarki þegar heilir atvinnuvegir hverfa. Við bendum jafnframt á að ef mennta- og lánasjóðskerfið stendur ekki fyrir sínu er hætt við að stór hópur sem misst hefur störf sín endi á atvinnuleysisbótum sem ríkið fær aldrei greiddar til baka.
Við gerum okkur fulla grein fyrir nauðsyn samdráttar í ríkisbúskap og allsherjarniðurskurði enda skella á námsmenn þungar byrðar víða í þjóðfélaginu.. Bendum einungis á þá þversögn er felst í því að ætla að byggja hér upp mennta- nýsköpunar og rannsóknarsamfélag en geta síðan ekki staðið undir því.
Undirritaðar náms- og stúdentahreyfingar sendu Menntamálaráðherra, Menntamálaráðuneytinu og menntamálanefnd þingsins bréf dagsett 14. nóvember síðastliðinn þar sem við lístum yfir áhyggjum vegna ástandsins, buðum fram stefnu og óskir, en engin svör hafa borist fyrr en óðaniðurskurður er tilkynntur. Stúdentahreyfingar landsins eru mjög ósáttar við þau vinnubrögð sem höfð hafa verið uppi í þessu tilviki og spyrja hvort þetta sé sú svörun sem við eigum að venjast í framtíðinni?
Við förum fram á að stjórnvöld endurskoði ákvörðun sína og marki skýra og raunhæfa stefnu í mennta- og lánasjóðsmálum.
Stúdentaráð Háskóla Íslands, Stúdentaráð Háskólans í Reykjavík, Stúdentaráð Háskólans á Akureyri, Stúdentaráð Menntavísindasviðs HÍ, Listaháskóli Íslands, SÍF og SÍNE.
Tilkynning um viðbrögð og árangur SHÍ í niðurskurði, 7. janúar 2008
Eins og margir hafa tekið eftir er boðaður niðurskurður á fjárlögum ríkisins til Háskóla Íslands og LÍN árið 2009. Hlutverk Stúdentaráðs er að vernda, verja og auka hag og hagsmuni stúdenta við skólann og benti ráðið á ýmsa vankanta við þennan niðurskurð.
Stjórn Stúdentaráðs sendi frá sér ályktun 14. desember þar sem lýst er yfir vonbrigðum með stefnu eða stefnuleysi ráðamanna í menntamálum. Hún var send á alla þingmenn og endurrituð í flestum öðrum miðlum, bæði dagblöðum og vefritum. Áhugasamir geta lesið ályktunina hér.
Eftir sterk viðbrögð Stúdentaráðs við fyrstu niðurskurðartillögum með
ályktun, blaðaskrifum, beinum samskiptum við þingmenn og stjórnmálaflokka var niðurskurður til HÍ minnkaður um ríflega 130 milljónir og niðurskurður til LÍN minnkaður um tæpar 700 milljónir - sem er óneitanlega mikill sigur á annars erfiðum tímum. Síðan er það framhaldsverkefni Stúdentaráðs að þrýsta á stjórnvöld að hlúa að mannsæmandi mennta- og lánasjóðskerfi nú þegar harðnar í ári á vinnumarkaði, þó við vitum vel að skera þarf niður víða.
Stúdentaráð hvetur stúdenta til þess að fylgjast með umræðunni og blanda sér í hana á þegar við á þetta mál hefur bein áhrif á menntastig landsins, jafnrétti til náms og lífsgæði stúdenta.
Ef þú hefur einhverjar spurningar eða hugmyndir um hvernig Stúdentaráð og stúdentar við Háskóla Íslands geta tekist á við framtíðina hvetjum við þig eindregið til að hafa samband við skrifstofu ráðsins á 3. hæð Háskólatorgs, beint fyrir ofan Bóksöluna.
F.h. SHÍ,
Björg Magnúsdóttir, formaður og Pétur Markan, framkvæmdastjóri
STJÓRN SHÍ
Í stjórn SHÍ starfsárið 2008-2009 sátu eftirfarandi stúdentar í stafrófsröð:
Björg Magnúsdóttir, Röskva, formaður SHÍ
Elín Ósk Helgadóttir, Röskva
Hildur Björnsdóttir, Vaka
Hrönn Guðmundsdóttir, Röskva, ritari SHÍ
Kári Hólmar Ragnarsson, Röskva, varaformaður SHÍ
Kristján Freyr Kristjánsson, Vaka, gjaldkeri SHÍ
Sigrún Ingibjörg Gísladóttir, Vaka
*Pétur Georg Markan, framkvæmdastjóri SHÍ, sat fundi stjórnar með málfrelsis- og tillögurétt.
SKRIFSTOFA SHÍ
Fastastarfsemi Stúdentaráðs var skipulögð og stýrt af skrifstofu ráðsins sem er nú að slíta barnskónum í aðstöðu sinni á Háskólatorgi þar sem hún hefur verið til húsa í ríflega eitt ár. Fastastarfsmenn starfsársins voru fjórir en eilítið breytt skipulag var ríkjandi á árinu.
Björg Magnúsdóttir, formaður SHÍ, Pétur Georg Markan, framkvæmdastjóri og lánasjóðsfulltrúi SHÍ, Yngvi Eiríksson, hagsmunafulltrúi og umsjónarmaður réttindaskrifstofu SHÍ og Bryndís Björgvinsdóttir, ritstjóri Stúdentablaðs SHÍ.
Sem fyrr var það meginhlutverk skrifstofu SHÍ að framfylgja vilja og verkefni Stúdentaráðs með hag námsmanna HÍ að leiðarljósi. Á árinu tókust fastastarfsmenn skrifstofunnar á við heilmörk verkefni sem nánar verður líst hér á eftir. Meðal annars þurfti að kljást við veigamikil frumvörp frá Alþingi, ýtt var undir menningar- og félagslegt hlutverk SHÍ, byggð var brú til forsvarsfólks nemendafélaga í skólanum, tenging við grasrótina, stúdenta var efld til muna, lóðir fengust úthlutaðar frá borgaryfirvöldum og uppbyggingu á tæplega 100 fjölskylduíbúðum í Reykjavík var ýtt úr vör.
Markmið: Stúdentar eiga að vita hvar skrifstofa SHÍ er, alltaf geta leitað þangaðmeð sín hugðarefni og hagsmunamál.
*Nýjung* Skipulagsbreytingar á skrifstofu SHÍ
Þegar búið var að ráða inn starfslið á skrifstofu Stúdentaráðs fyrir starfsárið lagðist stjórn SHÍ í athugun á þáverandi skipulagi og gerði í kjölfarið tillögur að stöðubreytingum. Einnig þótti stjórn mikilvægt að hlúið væri að grasrótinni, nemendum, tenging og boðleiðir til þeirra frá Stúdentaráði betrumbættar og um leið gerðar skýrari.
*Nýjung* Framkvæmdastjóri sem lánasjóðsfulltrúi
Meginbreyting varð á starfssviði framkvæmdastjóra, sem í krafti reynslu sinnar, sinnti einnig hlutverki lánasjóðsfulltrúa sem áður hef verið 50% stöðugildi á skrifstofunni. Með þessum breytingum náðist fram hagræðing hlutverka og stúdentar gátu borið upp fyrirspurnig um námslán og LÍN alla virka daga frá 9-17. Helmingur tíma framkvæmdastjóra fór hins vegar í bókhald og yfirumsjón fjármála SHÍ sem og viðburðastýringar ráðsins.
*Nýjung* Hagsmunafulltrúi í fyrsta sinn
Embætti hagsmunafulltrúa SHÍ sem var 50% staða á skrifstofunni var auglýst í fyrsta skipti laust til umsóknar á árinu.
Hagsmunafulltrúi sá samkvæmt ákvörðun stjórnar SHÍ alfarið um réttindaskrifstofu SHÍ, svaraði fyrirspurnum nema sem töldu að á rétti sínum væri brotið innan HÍ og rak í framhaldi mál þeirra. Einnig hafði hagsmunafulltrúi veg og vanda af skipulagningu NOM-BOM (norrænni og baltneskri) stúdentaráðstefnu sem haldin var í HÍ á haustdögum, sá um uppbyggingu og tengingu hagsmunafélaga á fræðasviðum HÍ sem tekin voru í notkun samkvæmt nýju skipulagi HÍ við sameiningu 1. júlí.
*Formaður SHÍ í einbeittri hagsmunabaráttu
Með skipulagsbreytingum innan skrifstofu SHÍ var skerpt enn frekar á embætti formanns SHÍ í bæði innri og ytri hagsmunabaráttu ráðsins. Formaður hafði þannig veg og vanda að umsjón með daglegum rekstri skrifstofu SHÍ, móttöku stúdenta þangað og hjálp. Formaður SHÍ hafði yfirsýn yfir skrifstofuna, svaraði tölvupósti, uppfærði heimasíðu og reyndi eftir fremsta megni að setja sig inn í störf fastanefnda og vinnuhópa.
*Nýjung* Betri tenging við grasrótina
Á starfsárinu þegar HÍ var skipt upp í fimm fræðasvið var einnig ákveðið að koma upp hagsmunafulltrúa á hverju svæði fyrir sig. Hagsmunafulltrúar sviðanna funduðu reglulega með háskólaráðsfulltrúum stúdenta, formanni SHÍ og hagsmunafulltrúa. Nemendur inni á hverju sviði gátu þannig leitað strax til hagsmunafulltrúa síns sviðs sem sá um að koma málum alveg upp til háskólaráðs ef svo bar undir.
*Nýjung* Formannafundir
Stúdentaráð tók skýra stefnu í tengingu við stúdenta HÍ sem skyldi vera með sem allra besta móti. Þannig ákváðu fastastarfsmenn skrifstofu að hitta reglulega formenn allra nemendafélaga Háskólann. Fundirnir voru mjög vel sóttir, ýmis hugðarefni forsvarsmanna komu upp og voru viðruð.
*Nauðsynleg hagsmunasamkunda
Ýmis hagsmunamál innan félaga og deilda voru reifuð, ráð gefin í hagsmunabaráttu og fulltrúar SHÍ áttu auðveldara með að leiðbeina og berjast fyrir hagsmunum þegar búið var að kortleggja félögin.
*Enn brýnni félagslífsvinkill
Þar sem Stúdentaráð gegnir, auk hagsmunabaráttu, menningar- og félagslífshlutverki komu formannasamkundur sér vel þegar átti að hóa saman stúdenta HÍ á hina ýmsu viðburði. Stúdentadagar, Októberfest og hátíð 1. desember var borin upp á fundinum, hugmyndum bætt í safnið svo úr varð farsælt og félagslynt starfsár sem þjappaði nemendum HÍ enn meira saman. Formannafundir gegndu lykilhlutverki í því og er það einlæg ábending að halda skuli þeim áfram á komandi starfsárum SHÍ.
FASTANEFNDIR SHÍ
Undir Stúdentaráði störfuðu á árinu 7 fastanefndir og eru þær neðantaldar sem og meðlimir þeirra.
1. Alþjóðanefnd sá um móttöku erlendra stúdenta í HÍ á haust- og vormisseri, tengiliðaverkefni, erlendu samstarfi fyrir hönd SHÍ, eftirlit með HÍ og ríkinu í innleiðingu alþjóðlegra ferla og samninga sem Ísland er aðili að.
Anna Sigríður Hafliðadóttir, Vaka
Bergþóra Snæbjörnsdóttir, Röskva, formaður
Hrönn Guðmundsdóttir, Röskva
Kolbrún Ingibjörg Jónsdóttir, Röskva
Þórarinn Sigurðsson, Vaka

2. Atvinnulífsnefnd hefur það hlutverk að auka tengsli nemenda skólans við atvinnulífið m.a. í gegnum ytri stjórn HÍ og Náms- og starfsráðgjöf. Stóð einnig fyrir Fjármála- og atvinnulífsdögum og fyrirlestrarröðum í samvinnu við Fjármálanefnd.
Brynjar Már Brynjólfsson, Röskva, formaður
Magnús Már Einarsson, Vaka
Margrét Rós Sigurjónsdóttir, Röskva
Sigurður Kári Árnason, Röskva
Vignir Örn Hafþórsson, Vaka
3. Fjármálanefnd bar uppi samningaviðræður við LÍN og hafði það lykilhlutverk að vera tenging stúdenta HÍ við LÍN þar sem SHÍ skipar fulltrúa í stjórn. Gegnir lánasjóðsþjónustu í þágu nemenda og stóð fyrir fjármála- og atvinnulífsdögum á haust- og vorönn í samvinnu við Atvinnulífsnefnd.
Agnar Burgess, Röskva, formaður
Bergur Sigurjónsson, Röskva, fulltrúi SHÍ í stjórn LÍN
Ingólfur Birgir Sigurgeirsson, Vaka
Kristján Freyr Kristjánsson, Vaka
Þórunn Elísabet Bogadóttir, Röskva
4. Fjölskyldunefnd fer með hagsmunamál fjölskyldufólks við HÍ. Henni er ætlað að gæta hagsmuna foreldra sem og barna þeirra meðal annars við það að viðhalda fjölskyldubænni stefnu við skólann. Fjölskyldunefnd stóð fyrir uppeldis- og íþróttanámskeiðum fyrir börn stúdenta og jólaballi í árslok.
Atli Bjarnason, Vaka
Helga Björg Þorvarðardóttir, Röskva
Katrín Sif Ingvarsdóttir, Röskva
Ólafur Páll Vignisson, Vaka
Þorleifur Örn Gunnarsson, Röskva, formaður
5. Hagsmunanefnd sér um stúdentakort nemenda við skólann í samráði við skrifstofu SHÍ. Nefndin aflar afslátta fyrir handhafa kortanna, sér um að uppfæra þau og láta vita ef breytinga eða viðgerða er þörf. Á árinu beitti nefndin sér fyrir lengri opnunartíma Bókhlöðunnar í prófatíð og vann stórsigur í því máli, hugði að háhraða nettenginum í öllum byggingum skólans og bætti tækjabúnað fyrir nemendur HÍ.
Jóhann Már Helgason, Vaka
María Finnsdóttir, Vaka
Sigurlaug María Hreinsdóttir, Röskva, formaður
Stefanía Bjarney Ólafsdóttir, Röskva
Sölvi Karlsson, Röskva
6. Jafnréttisnefnd stendur vörð um jafnréttismál innan HÍ. Nefndin átti fulltrúa við úthlutun úr greiningarsjóði SHÍ til nemenda með lesblindu, fundaði og lagði línur í samráði við Jafnréttisnefnd HÍ.
Atli Bjarki Kjartansson, Vaka
Kristjana Pálsdóttir, Röskva
Rakel Adolphsdóttir, Röskva, formaður
Vilborg Einarsdóttir, Vaka
Þórhalla Rein Aðalgeirsdóttir, Röskva
7. Menntamálanefnd einbeitti sér að kennslumálum innan HÍ, einkunnaskil kennara eftir próf í samráði við hagsmunafulltrúa SHÍ. Nefndin stóð fyrir námskeiði fyrir deilda- og skorafulltrúa innan HÍ, beitti sér fyrir endurtektarprófum í janúar og júní og lagði mat á frumvörp frá þinginu í samráði við skrifstofu SHÍ. Á fulltrúa í kennslumálanefnd HÍ.
Haukur Hólmsteinsson, Röskva
Hildur Björnsdóttir, Vaka
Kári Hólmar Ragnarsson, Röskva, formaður
Sigrún Ingibjörg Gísladóttir, Vaka
Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir, Röskva
FULLTRÚAR SHÍ
Með þremur fastanefndum SHÍ starfar fulltrúi sem er aukanefndarmeðlimur en hefur þar að auki fasta viðveru á skrifstofu SHÍ eina klukkustund á viku. Fulltrúar SHÍ hafa venjulega verið þrír en þetta starfsárið var þeim fjölgað upp í fimm til þess að auka á þjónustu við erlenda stúdenta. Fulltrúar SHÍ voru eftirfarandi:
Alþjóðafulltrúi er skipaður ár hvert og á starfsárinu gegndi Eva Rós Baldursdóttir þeirri stöðu. Verkefni hennar voru eftirfarandi, í samráði við skrifstofu SHÍ:
*Tengiliðaverkefni SHÍ
Alþjóðafulltrúi hefur yfirumsjón með tengiliðaverkefni SHÍ og Alþjóðaskrifstofu HÍ sem miðar að því að tengja saman erlenda og íslenska stúdenta. Sá hátturinn var á þetta árið að allir erlendir nemar sem skráðir voru við háskólann fengu íslenskan tengilið sem hafði það hlutverk að kenna hinum erlenda nema á íslenskt háskólalíf og menningu.
*Kynning erlendra nema
Í samráði við SHÍ sá alþjóðafulltrúi um kynningarfundi erlendra nema á haust- og vorönn.
*Nýjung* Sambandi komið á við ESN
Á starfsárinu var tenging við ESN Reykjavík efld til muna og erlendum stúdentum gert auðveldara að ganga í félagið og stunda alls kyns félagslíf ESN. Alþjóðafulltrúi var þannig einnig tengiliður erlendra nema HÍ við ESN og Stúdentaráð svo úr skapaðist skemmtileg heild.
Fjölskyldufulltrúi sat fundi fjölskyldunefndar og var til taks ásamt formanni fjölskyldunefndar þegar hagsmununamál foreldra innan HÍ komu upp. Embættinu gegndi Atli Bjarnason.
*Nýjung* Hagsmunafulltrúi erlendra nema*
Ákveðið var að ráða í fyrsta skipti í stöðu erlendra nema við HÍ og gafst það afar vel. Embættinu gegndi Katelin Marit Parsons og hafði hún viðveru á skrifstofu SHÍ einu sinni í viku, klukkustund í senn.
*Þýðingar
Hagsmunafulltrúi erlendra nema aðstoðaði fastastarfsmenn skrifstofu HÍ mikið við þýðingar á ýmiss konar sendingum til stúdenta á tölvupóstsformi eða upplýsingum á heimasíðu ráðsins sem sparaði tíma fyrir fastastarfsmenn.
*Móttaka erlendra nema
Að ótal hlutum þarf að huga fyrir erlenda stúdenta sem hefja nám í HÍ. Hagsmunafulltrúi veitti nauðsynlegar upplýsingar t.d. um umsókn íslenskrar kennitölu, lögheimilisbreytingu, leiguíbúðir í nágrenni háskólans og ódýra lifnaðarhætti í Reykjavík.
*Tenging við hóp um málefni erlendra nema
Hagsmunafulltrúi erlendra nema átti fast sæti í vinnuhóp um málefni erlendra nema og gat með reynslu sinni af tengingu við nemendur, miðlað málum sem efst voru á baugi í hugum erlendra stúdenta við HÍ.
Jafnréttisfulltrúi sat fundi jafnréttisnefndar SHÍ og hafði fasta viðveru á skrifstofu ráðsins eina klukkustund á viku. Tók þar við ýmsum málum sem lutu að hvers kyns jafnréttismálum innan háskólasamfélagsins. Embættinu á starfsárinu gegndi Þórður Gunnarsson.
*Nýjung* Jafnréttisfulltrúi erlendra nema var einnig starfræktur á árinu. Hafði hann viðveru á skrifstofu ráðsins, sat fundi í málefnahópi um erlenda nema og beitti sér í samráði við hagsmunafulltrúa erlendra nema. Embættinu gegndi Harald Josef Schaller.
*Endurbætur á heimasíðu SHÍ
Jafnréttisfulltrúi erlendra nema gerði á starfsárinu tillögur að ýmsum endurbótum á nýrri heimasíðu SHÍ, www.student.is sem koma erlendum nemum vel í framtíðinni.
VINNUHÓPAR SHÍ
*Nýjung* Vinnuhópur um málefni erlendra nema í HÍ. Erlendum nemendum í Háskóla Íslands fjölgar stöðugt og voru þeir á starfsárinu í kringum 1.000. Alþjóðanefnd SHÍ lagði til að vegna fjölgunar yrði settur saman sérstakur vinnuhópur um málefni þeirra. Í honum tóku sæti:
Bergþóra Snæbjörnsdóttir, formaður alþjóðanefndar SHÍ
Eva Rós Baldursdóttir, alþjóðafulltrúi SHÍ
Harald Josef Schaller, jafnréttisfulltrúi erlendra nema HÍ
Katelin Marit Parsons, hagsmunafulltrúi erlendra nema HÍ
Patricia Ann Þormar
Sandra Rún Sigurðardóttir
Sigrún Björk Friðriksdóttir, formaður
Taru Maria Kyllikki Lehtinen
*bætt félagslíf erlendra stúdenta í HÍ
Hópurinn stóð fyrir alls kyns félagstengdum viðburðum fyrir erlenda nema. Til dæmis matarkvöld þar sem hver stúdent framreiddi mat frá sínu heimalandi.
*kynning erlendra stúdenta á HÍ
Hópurinn í samráði við SHÍ hélt kynningarfundi fyrir erlenda nema á haust- og vormisseri á helstu þjónustu og atriðum sem varða nemendur háskólans. Að þeim loknum var farið í gönguferðir um háskólasvæðið.
*tenging við ESN Reykjavík
Hópurinn vann náið með ESN Reykjavík og útvíkkaði þannig til muna framboð á félagslífi. Frekari upplýsingar um starfsemi ESN www.esnreykjavik.com.
*Nýjung* Herferðarhópur SHÍ
Stofnsettur á árinu. Er hugsaður sem hugmyndapottur, rannsóknarmiðstöð og miðlari hugmynda til réttra aðila innan SHÍ eða HÍ. Í hópnum voru:
Agnar Burgess, Röskva
Bergþóra Snæbjörnsdóttir, Röskva
Eva Þóra Karlsdóttir, Vaka
Geirný Ómarsdóttir, Vaka
Hrönn Guðmundsdóttir, Röskva
Jón Júlíus Karlsson, Vaka
*Skólagjaldalaus HÍ. Í tengslum við frumvarp sem lagt var fyrir um vor 2008 lagðist Röskvu-armur herferðarhópsins í herferð gegn skólagjöldum.

*Útgáfa Akademíu
Hópurinn vann í samráði við skrifstofustarfsmenn SHÍ að útbúningi og útgáfu Akademíu, upplýsingabókar Stúdentaráðs 2008-2009.
*Græn herferð í samvinnu við HÍ
Herferðarhópurinn vann að umgengis- og grænni herferð á háskólasvæðinu í samráði við yfirvöld HÍ. Í herferðinni voru stúdentar hvattir til að endurvinna, nota ruslatunnur og umhverfisvæna ferðamáta.
Stórhátíðarhópur SHÍ hefur umsjón með árlegum fastaviðburðum á vegum SHÍ í samráði við fastastarfsmenn skrifstofu ráðsins. Á starfsárinu sátu eftirfarandi í hópnum:
Berglind Ósk Stefánsdóttir, Vaka
Haukur Hólmsteinsson, Röskva
Jóhann Már Helgason, Röskva
Orri Freyr Gíslason, Vaka
Pétur Markan, framkvæmdastjóri SHÍ
Þórunn Elísabet Bogadóttir, Röskva
*Stúdentadagar
Stórhátíðarhópur hafði, ásamt skrifstofu SHÍ, yfirumsjón með skipulagningu stúdentadaga sem haldnir eru í byrjun skólaárs ár hvert. Meðlimir hópsins skiptu með sér ýmsum verkefnum, s.s. skipulagningu spurningakeppni milli deilda, fótboltamóts og voru til taks á dögunum sjálfum við verkefni sem þurfti að vinna.
*Októberfest
Hópurinn vann í nánu samstarfi við AM Events sem hélt Októberfest 2008 í samstarfi við SHÍ í nokkra mánuði áður en viðburðurinn var haldinn um miðjan október. (sjá nánar: hvar er fjallað um októberfest í ársskýrslu).
*Nýjung* SAMGÖNGUSTEFNA SHÍ var settur á laggirnar á starfsárinu. Um er að ræða stefnumótun undir stjórn Sverris Bollasonar, verkfræðings og starfsmanns verkfræðistofunnar VSÓ. Starfshópinn skipuðu Björg Magnúsdóttir, formaður SHÍ og Jóhann Már Helgason Stúdentaráðsliði.
*Leiðarljós samgöngustefnu SHÍ
Stefnan mun nýtast SHÍ við að fylgja úr garði vel rökstuddri aðgerðaráætlun á skýrt afmörkuðu sviði. Hún nýtist sem hugmyndabanki fyrir framtíðarstarf ráðsins. Samgöngustefna SHÍ skal vera framsýn stefna sem gætir jafnvægis í hagsmunum stúdenta og þess umhverfis sem Stúdentaráð starfar í. Við byggjum á grunngildum SHÍ: jafnrétti, framtíðarsýn og þjónustu.
*Meginmarkmið
1. Stefnt er að sterkara háskólasamfélagi sem er sjálfbært um þjónustu við stúdenta.
2. Háskólasvæðið bjóði upp á aðstöðu fyrir fjölbreytta samgöngumáta og að jafnræðis sé gætt á meðal þeirra allra.
3. Stúdentaráð leiti samstarfs við yfirvöld um bætt umhverfisgæði og bættar samgöngur á höfuðborgarsvæðinu.
*Næstu skref
Samgöngustefnan var tilbúin í janúar 2008 og kynnt innan stjórnsýslu HÍ í kjölfarið. Stefnuna má í heild sinni sjá inni á heimasíðu ráðsins, www.student.is.
RÉTTINDASKRIFSTOFA STÚDENTARÁÐS
Stúdentaráð heldur úti réttindabaráttu fyrir stúdenta bæði innan skóla sem utan. Innan skólans er það réttindaskrifstofa SHÍ sem tekur við kvörtunum, spurningum eða vangaveltum um hagsmunamál. Réttindaskrifstofan starfsárið 2008-2009 var í höndum Yngva Eiríkssonar, hagsmunafulltrúa, í samvinnu við aðra fastastarfsmenn skrifstofu SHÍ.
Reglur sem stuðst er við
Við úrlausn mála sem koma til Réttindaskrifstofu SHÍ styðst starfsfólk við verklagsreglur um góða starfshætti við kennslu og próf í Háskóla Íslands sem má nálgast hér.
Verklag
Réttindaskrifstofan tekur á móti öllum stúdentum sem telja sig þurfa hjálp við úrlausn mála innan HÍ, veitir þeim ráðleggingar og hjálpar þeim áfram með hagsmunamál. Skrifstofan gætir nafnleyndar stúdenta óski þeir þess.
*Nýjung* Gæðakönnun – útkoma
Skrifstofan gerði könnun meðal þeirra stúdenta sem fengu aðstoð Réttindaskrifstofunnar á árinu og eftirtekt vakti hversu mikillar ánægju gætti meðal stúdenta sem fengu úrlausn sinna mála með skrifstofuna.
STÚDENTABLAÐIÐ
Stúdentaráð gefur út Stúdentablaðið sem er eina óháða og frjálsa blaðið á landinu (í dag). Blaðið kemur um það bil á mánaða fresti meðan skólaárið stendur yfir. Allir stúdentar við HÍ hafa kost á því að senda inn efni og viðra þar með skoðanir sínar meðal samnemenda.
Ritstjóri og stefna
Stjórn SHÍ réði Bryndísi Björgvinsdóttur, sagnfræði-dúx og meistaranema í þjóðfræði í HÍ til þess að ritstjóra blaðinu á skólaárinu. Bryndís var í hálfu starfi og fyrsta blað hennar kom út í lok september. Stefna Bryndísar við útgáfu blaðsins var í stuttu máli eftirfarandi:
*Stúdentablaðinu er skylt að velta upp steinum, skoða samfélagið og benda á ranglæti eða réttlæti. Blaðið á að vera metnaðarfullt og hlaðið og kalla ekkert ömmu sína.
*Kjarnmikið viðtal við manneskjur úr þjóðfélaginu í hverju tölublaði sem vektu upp spurningar, jafnvel átök og úlfúð.
*Myndir í blaðinu skulu vera krítískar og segja eitthvað, skemmtilegar en banvænar í senn.
*Stutt og hnitmiðað spjall við nemendur skólans til að kanna stemningu í þeirra deildum. Stúdentablaðið verður að leyfa röddum nemenda og kennara að heyrast svo ráðamenn séu líklegri til að hnýta um þær.
*Stúdentablaðið á að hafa puttann á hagsmunapúsli nemenda út á við, en ekki síður inn á við.
Ritstjórn
Auglýst var eftir áhugasömum stúdentum til þess að taka sæti í ritstjórn blaðsins á haustmánuðum 2008 með hi-nem pósti og auglýsingum í helstu byggingum háskólasvæðisins. Eftirtaldir nemendur sátu í ritstjórn Stúdentablaðsins á starfsárinu, í stafrófsröð:
Anna Björk Einarsdóttir
Einar Axel Helgason
Finnur Guðmundarson Olguson
Guðmundur Friðrik Magnússon
Haukur Johnson
Kristín Svava Tómasdóttir
Magnús Þorlákur Lúðvíksson
Olga Björt Þórðardóttir
Ólöf Skaftadóttir
Sandra Ósk Snæbjörnsdóttir
*Nýjung* Aukin aðkoma SHÍ
Stúdentaráð fundaði um aðkomu ráðsins að blaðinu og sú tillaga var viðruð að SHÍ hefði ákveðnar síður í hverju tölublaði til ráðstöfunar. Ráðið taldi það eðlilegt þar sem Stúdentablaðið væri fjármagnað í samráði við skrifstofu SHÍ og ætti að vera málpípa kjörinna Stúdentaráðsfulltrúa í bland við aðra nemendur skólans. Ritstjóri og ritstjórn Stúdentablaðsins tók vel í hugmyndina og ákveðið var að SHÍ hefði u.þ.b. 2-4 blaðsíður í hverju útgefu tölublaði til þess að koma hugðarefnum og verkefnum sínum á framfæri í samráði við ritstjóra.
Ákveðið var á Stúdentaráðsfundi í kjölfarið að fastanefndir ráðsins skiptu efnistökum í blaðið á milli sín, allt eftir verkefnum og ástandi hverju sinni.
Fastastarfsmenn skrifstofunnar leggja til að þessum hætti verði haldið áfram á komandi árum.
*Nýjung* Tæknivæðing
Í HÍ virðist hver einasti nemandi eiga sína eigin fartölvu og nota hana ótæpilega við nám og skemmtanir allar. Vegna þess var ákveðið að nýta tækni og búnað nemenda til þess að auðvelda lestur Stúdentablaðsins. Mikið kapp var lagt á að Stúdentablaðið væri aðgengilegt af netinu fyrir stúdenta bæði til þess að auka á þægindi en einnig til þess að spara prentkostnað og vera umhverfisvæn í leiðinni. Í fyrsta skipti í sögu Stúdentaráðs eru öll útgefin blöð inni á vefsíðu ráðsins, www.student.is.
*Nýjung* HÁSKÓLAKYNNING Á HÁSKÓLATORGI
Í febrúar 2008 opnaði HÍ sig upp á gátt einn fagran laugardag fyrir verðandi stúdentum og þar með verðandi háskólanemum. Háskólatorg var þétt setið af framhaldsskólanemum, fólki úr atvinnulífi og öðrum Íslendingum. Stúdentaráð var með bás og kynningu á starfsemi sinni. Ráðið taldi þá viðveru hluta af sýnileikaherferð sem ákveðið hafði verið að ráðast í. Þrír meginþættir voru í fyrrúmi:
*Kynna verðandi nemendur Háskóla Íslands fyrir hagsmunafélaginu sínu innan veggja skólans og leyfa þeim að forvitnast um hlutverk þess.
*Kynna áhugasama Háskólatorgsgesti og Íslendinga fyrir verkefnum SHÍ og leyfa þeim að spyrja um hlutverk þess.
*Taka þátt í lifandi Háskólatorgi og styðja HÍ af fullum krafti með aðkomu og sýnileika á stórum dögum í starfi hans.

600 NÝJAR STÚDENTAÍBÚÐIR
Stúdentaráð undirritaði þríhliða samkomulag við FS og Reykjavíkurborg 19. mars 2008 sem kvað um að valdhafar í höfuðborg útvegi FS lóðir undir 600 stúdentaíbúðir til 2011. Þegar staðið hefur verið við samkomulagið verður hlutfall stúdenta sem geta fengið inni í íbúðum FS 15% miðað við 7% eins og staðan var fyrir undirritun. Íbúðirnar munu rísa að meirihluta í nágrenni miðborgar og í Vatnsmýri.

*Langir biðlistar
Samningurinn var tímabær, kom sér gríðarlega vel og var undirritaður í kjölfar mikillar vinnu þriggja fyrrnefndra aðila. Stúdentaráð þurfti þó að minna verulega á sig við borgaryfirvöld, skrifa blaðagreinar og biðja um fundi.
*Skógarvegur fyrsti áfangi
Kringum 80 fjölskylduíbúðir við Skógarveg voru fyrsti áfanginn í samninginum og var fyrsta skóflustunga þeirra tekin í byrjun janúar 2009.
STÚDENTARÁÐ GEGN SKÓLAGJÖLDUM
Í mars 2008 lagði menntamálaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fram frumvarp um opinbera háskóla. Þau lög var nauðsynlegt að afgreiða áður en til sameiningar kæmi við Kennaraháskóla Íslands í júlí sama ár. Frumvarpið í heild sinni einfaldar stjórnsýslu háskólans en SHÍ gerði þó veigamiklar athugasemdir við fyrstu atrennu þess sérstaklega í ljósi þess sem það opnaði glufu fyrir upptöku skólagjalda við opinbera háskóla. Stúdentaráð vann stíft við umsögnina, ræddi við fulltrúa þingsins og stjórnmálaflokka. Á rödd ráðsins var sannarlega hlustað og lögin urðu talsvert öðruvísi en frumvarpið leit út – hvergi var heimild til upptöku skólagjalda í HÍ.
Umsögn
Stúdentaráð útbjó veigamikla umsögn um frumvarpið eftir nána rannsóknarvinnu og gerði veigamiklar athugasemdir við eftirfarandi: umbyltingu á skipun háskólaráðs sem fer með allar meiriháttar ákvarðanir innan HÍ, val rektors og rúmar gjaldtökuheimildir.
Skipun nýs háskólaráðs
Stúdentaráð setti sig harkalega gegn nýjum, utanaðkomandi meirihluta sem var boðaður í háskólaráði með frumvarpinu. Þá meirihlutatilfærslu taldi SHÍ mjög óheppilega sem og að verið væri að fækka fulltrúum stúdenta.
Lýðræðislega kjörinn rektor
Stúdentaráð lagði mikla áherslu á að rektor HÍ yrði ennþá lýðræðislega kjörinn og að skipun hans yrði ekki færð undir menntamálaráðherra.
Of rúmar gjaldtökuheimildir
Stúdentaráð bendir á að allt of rúmar gjaldtökuheimildir væru í frumvarpinu. Aukin greiðsluþátttaka stúdenta er andstæð þeim grunngildum um jafnrétti til náms sem er bundin í stjórnarskrá. Ráðið krafðist þess að 45.000 króna skráningargjald yrði bundið í lögin.
Menntamálaráðuneyti og menntamálanefnd Alþingis heimsótt
Formaður og gjaldkeri SHÍ pöntuðu fund með ráðuneytisstjóra menntamálaráðuneytis og lýstu yfir áhyggjum og kröfum Stúdentaráðs varðandi frumvarpið. Fulltrúar SHÍ sem og annarra námsmannahreyfinga fóru á fund með menntamálanefnd Alþingis og kynntu breytingartillögur sínar ásamt því að lýsa yfir þungum áhyggjum með fyrrnefnda þætti frumvarpsins.
Málþing á Háskólatorgi
Stúdentaráð stóð fyrir málþingi þann 18. apríl á Háskólatorgi sem fjallaði um frumvarpið til laga um opinbera háskóla. Opið var fyrir spurningar úr sal og fjöldi stúdenta og margt úr starfsliði HÍ sótti málþingi. Framsögufólk var eftirfarandi:
Höskuldur Þórhallsson, Framsókn, menntamálanefnd Alþingis
Jón Magnússon, Frjálslyndir, menntamálanefnd Alþingis
Katrín Jakobsdóttir, VG, menntamálanefnd Alþingis
Katrín Júlíusdóttir, Samfylking, menntamálanefnd Alþingis
Kristján Freyr Kristjánsson, Stúdentaráðsliði
Sigurður Kári Kristjánsson, Sjálfstæðisflokkurinn, menntamálanefnd Alþingis
Fundarstjóri var Björg Magnúsdóttir, formaður Stúdentaráðs.

Helstu breytingar á frumvarpi sökum baráttu SHÍ
*Stúdentum fjölgaði um helming í háskólaráði áður en frumvarpið varð að lögum.
*Framkvæmd á vali rektors er í höndum háskólaráðs í nýju lögunum. Fulltrúar SHÍ munu leggja áherslu á lýðræðislega kosningu rektors.
*Skráningargjald var bundið í 45.000 krónur og upptöku skólagjalda í HÍ var afstýrt.
LÁNASJÓÐSSAMNINGAR
Fulltrúi SHÍ í stjórn LÍN, Bergur Sigurjónsson, sá um samningaviðræður um námslán fyrir hönd stúdenta í HÍ. Samningaviðræður fóru fram í maí 2008 en í stjórninni fyrir utan Berg sitja: Gunnar Ingi Birgisson, formaður, Kristín Edwald, varaformaður, Agla Elísabet Hendriksdóttir, fulltrúi menntamálaráðuneytis, Ásta Þórarinsdóttir, fulltrúi fjármálaráðuneytis, Ásgeir Þórarinn Ingvarsson, fulltrúi SÍNE, Rakel Lind Hauksdóttir, fulltrúi BÍSN og Sindri Rafn Þrastarson, fulltrúi INSÍ.
*Áherslur og árangur Stúdentaráðs í samningum við LÍN 2008
*Mánaðarlegar greiðslur námslána: SHÍ leggur áherslu á að námsmenn losni undan sligandi yfirdráttarláni frá bönkunum.
-Nefnd sett á laggirnar sem tekur til athugunar mánaðarlegar greiðslur.
*Greitt verði út fyrir hverja þreytta og lánshæfa einingu
-Í seinustu samningur náðist það fram að nemar þurfa nú að klára 20 ECTS-einingar á skólaári til þess að fá námslán greidd miðað við við 22 ECTS-einingar á önn fyrir það.
*Hærri grunnframfærsla
-Í samningum í maí '08 náðist fram mesta hækkun grunnframfærslu LÍN eða 8.700 kr. á mánuði fyrir einstakling í leiguíbúð. Þá var einnig komið á fót nefnd til þess að kanna raunverulega framfærsluþörf stúdenta.
*Nýjung* UMHVERFISDAGAR
Dagana 1.-3. apríl 2008 voru haldnir á vegum Umhverfisdagar í HÍ í fyrsta skipti á vegum SHÍ, Gaia – félagi meistaranema í umhverfis- og auðlindafræðum og Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun við HÍ. Tilgangurinn með dögunum var að auka umhverfisvitund meðal stúdenta og starfsfólks skólans.

Dagskrá
Á Umhverfisdögum voru settir upp básar á Háskólatorgi til þess að kynna umhverfisvænar vörur og lausnir. Ýmsir fyrirlestrar fagaðila voru í boði sem og kvikmyndasýning á heimildamynd og spurningakeppni.
Framtíð
Stúdentaráð og Gaia hafa þegar bundist saman böndum við skipulagningu og framkvæmd umhverfisdaga vorið 2009.
1. MAÍ GANGA
Röskvuarmur Stúdentaráðs tók sig til og útbjó baráttuskylti með viðeigandi verkalýðsslagorðum til þess að halda á lofti 1. maí 2008. Fílefldir mættu þá fulltrúar ráðsins í göngu á fallegum maímorgni og minntu á hagsmunabaráttu stúdenta.
*Nýjung* PRÓFLOKAVEISLA
Í samvinnu við AM Events bætti Stúdentaráð félagslíf og geð nemenda í HÍ með próflokaballi sem haldið var á skemmtistaðnum NASA þann 16 maí. Páll Óskar Hjálmtýsson þar sem nemendur úr öllum deildum og sviðum hristu sig eftir stífa prófatörn.
LENGRI OPNUNARTÍMI BÓKHLÖÐU
Hagsmunanefnd SHÍ tók opnunartíma Bókhlöðunnar til skoðunar og fékk hann lengdan í prófatíð, bæði að vori og á jólum. Virka daga var opið frá 8:15 – 22:00, einnig á föstudögum og um helgar frá 10:00-18:00 sem gaf nokkra aukatíma.
STÆRRA PÓSTHÓLF
Hagsmunanefnd og Stúdentaráð stækkuðu pósthólf allra nemenda við HÍ úr 300 MB í 1 GB.
*Nýjung* VINNUDAGUR SHÍ
Mikill vilji var hjá fastastarfsmönnum SHÍ að reyna að sameina fylkingar innan SHÍ og fá þær til að vinna meira og betur saman. Vinnudagur SHÍ í byrjun sumars 2008 var ákveðinn liður í því.
*Framkvæmd
Unnið var með vinnuferli að suður-evrópskum sið sem miðar að því að fá hvern einstakling til þess að leggja eitthvað inn í púkk allra starfshópa. Hrönn Guðmundsdóttir og Bergþóra Snæbjörnsdóttir stýrðu málefnavinnunni.
*Helstu niðurstöður
Á vinnudeginum var mörkuð ákveðin stefna fyrir komandi starfsár. Stúdentaráð ætti að auka sýnileika sinn í réttindabaráttunni sem var m.a. gert með stofukynningu, námskynningum, útgáfu Akademíunnar, menntagöngum, gjörningum til yfirvalda, aukinni aðkomu Stúdentaráðs í Stúdentablaðið, fjölda félagsviðburða og reglulegum formannafundum.
SAMEINING HÍ OG KHÍ 1. júlí 2009
Tveir af stærstu háskólum landsins sameinuðust eftir miklar skipulagsbreytingar og gæða-aukningar aðgerðir en skýrt skal tekið fram að sameiningin var ekki í sparnaðarskyni og hvergi hagrætt á kostnað nemenda. Mikil veisla var á Háskólatorgi en aðalveislan hófst þó haustið 2008 þegar kom að því að reyna hversu vel tækist til þegar nemendur hins sameinaða háskóla hæfu nám.
*Verkefmahópur sameiningar um helstu hagsmunamál nemenda
Verkefnisstjórn sameiningar KHÍ og HÍ skipaði í nóvember 2007 verkefnishóp sem fjallaði um helstu hagsmunamál nemenda vegna sameiningar. Eftirtaldir voru skipaðir*:
Alma Joensen, framkvæmdastjóri SHÍ 2007-2008
Dagný Ósk Aradóttir, formaður SHÍ 2007-2008
Svanhildur Kaaber, skrifstofustjóri rektorsskrifstofu KHÍ, formaður
Júlía Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri SKHÍ
Sigurður Grétar Ólafsson, fulltrúi SKHÍ
Sigurður J. Hafsteinsson, fjármálastjóri HÍ
*Í byrjun febrúar 2008 var Björg Magnúsdóttir kjörin formaður SHÍ og tók þá einnig sæti í hópnum.
*Helstu niðurstöður
*Verkefnishópurinn var sammála um að fyrst um sinn myndu nemendur á menntavísindasviði halda áfram að sækja um íbúðir hjá BN en stúdentar við HÍ hjá FS eins og verið hefur.
*Vinnuhóp verði komið á fót til að finna framtíðarlausn á leiðum til úthlutunar stúdentaíbúða fyrir alla stúdenta HÍ þar sem jafnræðis yrði gætt og SKHÍ tapaði ekki eign sinni inn í BN. Vinnuhópurinn skyldi hafa lokið sé af í janúar 2009.
*Framtíðarmarkmið er að hafa úthlutun stúdentaíbúða á einni hendi.
*Við sameiningu gátu allir stúdentar sótt um leikskólapláss hjá FS og lagði hópurinn áherslu á að þess konar plássum yrði fjölgað.
*Hópurinn lagði til að FS myndi skoða að taka yfir matsölurekstur í Stakkahlíð meðan starfsemi menntavísindasvið er þar.
*Stúdentaráð HÍ og KHÍ sameinast fjárhagslega 1. janúar 2009 en þar fyrir utan tekur SHÍ yfir ytri hagsmunabaráttu KHÍ.
*Kostir sameiningar fyrir stúdenta
*Fjölbreyttara námsúrval sem nemendur beggja skóla geta nýtt sér. Til dæmis er mögulegt að taka kennsluréttindi ofan á hvaða BA- eða BS gráðu sem er.
*Stúdentar í KHÍ geta sótt um leikskóla fyrir börn sín á vegum FS.
*Verið er að semja um aðgengi allra stúdenta við HÍ um aukið íbúðaframboð í gegnum BN.
*Þekking flæðir á milli. Gamli KHÍ er t.d. mun framar HÍ hvað varðar fjarkennslu sem hægt er að nýta til hagsbóta fyrir stúdenta.
*Stúdentaráð verður öflugri hagsmunaaðili með fleiri og fjölbreyttari stúdentahóp að baki sér.
*Nemendur á menntavísindasviði sækja öll sín hagsmunamál gegnum SHÍ og hafa aðgengi að skrifstofu ráðsins virka daga frá 9-17.
*Nýjung* TÍMAMÓTASAMNINGUR VIÐ BORGARLEIKHÚS
Fulltrúar á skrifstofu Stúdentaráðs vildu, eins og fram hefur komið, auka enn frekar á menningar- og félagslegt hlutverk ráðsins. Það var meðal annars gert með tímamótasamningi við Borgarleikhúsið. Samið var um að stúdentar fengju miða á 5 sýningar leikhússins á 4.450 krónur og Borgarleikhúsið styrkti ráðið ríflega við útgáfu Akademíu. Leikhúsmiða gátu stúdentar kynnt sér og keypt á Háskólatorgi. Samstarf SHÍ og BL var einstaklega farsælt og mæltist slíkt menningarframtak mjög vel fyrir meðal stúdenta.
*Nýjung* MENNINGARNÓTT
Á menningarnótt í Reykjavíkurborg var þemað Torg í borg og var Háskólatorg eitt torga sem skyldi opna fyrir almenningi og fór þar fram ítarleg daglöng dagskrá. Stúdentaráð tók þátt í verkefninu og mættu Stúdentaráðsliðar galvaskir til leiks, spjölluðu við gesti og gangandi, kynntu þá fyrir ráðinu og skoruðu á þá í ýmsum spilum og leikjum. Klepparakeppni gafst einkar vel.
ÁFRAM FRÍTT Í STRÆTÓ
Ákveðið var að áfram skyldi haldið með frítt-í-strætó fyrir stúdenta verkefni Reykjavíkurborgar sem þó með nokkrum breytingum sem SHÍ setti sig alfarið gegn. Breytingarnar fólust í því að námsfólk aðeins 6 sveitarfélaga kringum höfuðborgina áttu kost að sækja um ókeypis strætókort, engir skiptistúdentar við HÍ né þeir sem hafa lögheimili úti á landi. Garðabær var stærsta sveitarfélagið sem tók ekki þátt í verkefninu. Urðu þessi neikvæðu, upptalin atriði til þess að eyðileggja talsvert fyrir framgöngu verkefnisins og komu á það frekar neikvæðum blæ. Ári áður höfðu verið prentuð strætókort fyrir alla skráða stúdenta við HÍ.
*Ályktun, greinaskrif og heimsókn í Ráðhús Reykjavíkur
Stúdentaráð beitti sér af hörku í stóra strætómálinu (sjá ályktanir – hvar í ársskýrslu) þar sem gallar verkefnisins urðu til þess að sveipa það neikvæðum blæ. Stúdentaráðsliðar lögðust í greinarskrif, ályktuðu, sendu sveitarfélögum landsins bréf og Röskvuarmur Stúdentaráðs heimsótti Ráðhús Reykjavíkur til þess að afhenda borgarfulltrúum orðsendingu.
Stúdentaráð leggur áherslu á að víðtækt samráð sé haft við fulltrúa ráðsins áður en ákveðið er hvernig útfærsla ókeypis samgangas stúdenta fer fram.
*Nýjung* NÝNEMADAGAR Á HAUSTÖNN
Dagarnir 28. ágúst til 3. september voru tileinkaðir nýstúdentum við HÍ. Í skipulagsferli var haft víðtækt samráð við allar þjónustueiningar stúdenta og sat formaður SHÍ þá fundi f.h. ráðsins.
*Dagskrá
Öll dagskrá fór fram á Háskólatorgi og var nýnemum skólans sent bréf með henni. Kristín Ingólfsdóttir rektor hélt tölu sem og allar þjónustueiningar HÍ. Kaffibarþjónar frá Te & Kaffi buðu upp á Fairtrade kaffi og FS gaf köku á torginu. Sýndur var Salsa-dans, Stúdentaleikhúsið var með uppákomur, hagsmuna- og nemendafélög kynntu starfsemi sína, léttur jazz spilaður og Borgarleikhúsið var með atriði.
*Aðkoma SHÍ
Björg Magnúsdóttir, formaður Stúdentaráðs, ávarpaði nýnema skólans á Háskólatorgi og kynnti þeim starfsemi SHÍ. Að því loknu buðu Stúdentaráðsliðar nýnemum í gönguferð um svæðið til þess að kynnast því. Göngurnar voru mjög fjölmennar og enduðu á skrifstofu Stúdentaráðs þar sem allir fengu Akademíu-bók í hendurnar.

NÝNEMADAGAR ERLENDRA NEMA
Alþjóðanefnd, SHÍ og vinnuhópur um málefni erlendra nema við HÍ héldu sérstaka kynningardagskrá fyrir erlenda nema sem miðaði að því að þétta hóp þeirra og bjóða þau velkomin.
*Dagskrá
Nýnemadagur erlendra nema var haldinn miðvikudaginn 3. september. Þá var þeim safnað saman í hátíðarsal Aðalbyggingar og SHÍ og Alþjóðaskrifstofa buðu upp á léttar veitingar. Erlendu nemarnir fengu allar grunnupplýsingar um háskólann, gönguferð um svæðið og stórskemmtilegan ratleik sem hristi þeim saman fyrir komandi skólaár.
STÚDENTADAGAR Á HAUSTÖNN
Í beinu framhaldi af nýnemadögum stóð SHÍ fyrir stúdentadögum sem fóru fram á háskólasvæðinu dagana 4.-5. september. Dagarnir þóttu takast einstaklega vel til enda léku veðurguðir við nemendur skólans sem voru á 13. þúsund á starfsárinu.
*Dagskrá
Fimmtudaginn 4. september var undankeppni fótbolta- og Gettu Betur spurningakeppni milli deilda og faga Háskólans ött. Aldrei höfðu jafnmörg félög skráð þátttöku sína, samtals hve margir í boltanum og hve margir í spurningakeppni. Steinþór Helgi Arnþórsson þeytti skífum fyrir utan Háskólatorg og ókeypis pylsur voru gefnar. Seinni part fimmtudags kveikti hljómsveitin Hjaltalín í stúdentum á Torginu sem var algerlega troðfullt. Happy hour á Hámubarnum sem mæltist einnig vel fyrir.
Föstudaginn 5. september var keppt til úrslita í spurningarkeppni milli deilda á Háskólatorgi með RÚV Gettu Betur settið að láni. Lögfræði fór með sigur af hólmi. Háskóladansinn var með uppákomu og úrslit í fótboltanum voru á túni fyrir framan Aðalbyggingu. Viðskiptafræðideild vann mótið. Um kvöldið var haldið Háskólaball á Broadway í samstarfi við AM Events.
DAGBÆKUR FS
Skóladagbækur FS eru orðnar fastur liður í tilveru stúdenta við HÍ og fengu þeir bækurnar í hendurnar úr Bóksölu Stúdenta á Háskólatorgi bæði í byrjun haust- og vormisseris. Á vormisseri var prentað sérstakt aukaupplag til þess að dreifa í Stakkahlíð eða gamla Kennó.
HEIMSÓKN Á LAUGARVATN
Fulltrúum Stúdentaráðs var boðið í skemmtiferð á Laugavatn með Kennóliðum á haustdögum 2008. Björg Magnúsdóttir, formaður SHÍ og Þorleifur Örn Gunnarsson, formaður fjölskyldunefndar SHÍ lögðu land undir fót og kynntu sér samstúdenta sína austur fyrir fjalli, reyndu á eigin skinni heimatilbúinn ratleik og var tekið eins og þjóðhöfðingjum af nemendum á íþróttabraut Kennó. 
ALÞJÓÐLEGT ELDUNARKVÖLD Í STAPA
Alþjóðanefnd Stúdentaráðs stóð fyrir skemmtikvöldi í Stapa á miðju haustmisseri en það fór þannig fram að hver þátttakandi, sem allt voru erlendir stúdentar, elduðu einn matrétt frá sínu heimalandi og bauð öðrum að smakka. Eldunarkvöldið var einstaklega huggulegt blóm í skrautfjöður SHÍ og mæltist vel fyrir. Stapi þótti henta vel fyrir slíkar samkundur þar sem stór salur er samliggjandi við eldhús.
STÚDENTAVERÐ Í HÁMU
Þar sem Háma er einn af vinsælli veitingastöðum bæjarins taldi SHÍ það þjóðráð að boðið yrði upp á sérstakt stúdentaverð þar á bæ en verð væri hærra fyrir utanaðkomandi aðila. Hugmyndin var unnin í kringum FS og fengu stúdentar, gegn framvísun stúdentakorts, heitan mat í hádeginu á 650 kr. í stað 800 kr., súpa á 300 kall í stað 450 og kaffisopinn á sérkjörum.
*Nýjung* LÆGST BENSÍNVERÐ FYRIR STÚDENTA
Hagsmunanefnd Stúdentaráðs í samráði við starfsmenn skrifstofu gerðu tímamótasamning við Atlantsolíu í september 2008 sem tryggði þeim stúdentum við HÍ sem notuðu bíla, lægsta bensínverðið í bænum. Stúdentar með dælulykil SHÍ fá 3 kr. í afslátt af hverjum bensínlítra og hægt er að sækja um dælulykilinn í gegnum www.student.is.
*Nýjung* MÁLÞING OG KVIKMYNDASÝNING
Stúdentaráð stóð fyrir málþingi um heimildamyndina The Amazing Truth about Queen Raquela í hádeginu 8. október en myndin fjallar um lady-boy frá Filippseyjum. Framsögufólk á málþinginu voru Ólafur Jóhannesson, leikstjóri myndarinnar, Anna Jonna Ármannsdóttir, formaður félags Transgender einstaklinga, Gunnar Theodór Eggertsson, doktorsnemi í bókmenntafræði með þungamiðju á kvikmyndir og Katrín Anna Guðmundsdóttir, stundakennari í HÍ og meistaranemi í kynjafræðum.
Um kvöldið var kvikmyndin forsýnd á Háskólatorgi fyrir stúdenta gegn vægu verði.
OKTÓBERFEST
Í fyrsta skipti var Októberfest haldið í samstarfi við viðburðafyrirtæki, AM Events. Skipulagningu var þannig að mörgu leyti létt af herðum skrifstofu SHÍ sem náði um leið að einbeita sér að öðrum mikilvægum málum. Hátíðin stóð yfir í 3 daga en venjulega hefur hún einungis verið 2 dagar að lengd.

*Skipulagning
Fulltrúar SHÍ hittu fulltrúa AM Events reglulega frá maí 2008 og fram að októberfest. Í fyrstu voru það fastastarfsmenn skrifstofunnar sem lögðu línurnar en þegar nær dró var stórhátíðarhópur SHÍ innvinklaður.
*Kynning
Alls kyns leiðum var beitt í kynningu Októberfest. Til að mynda voru útbúin myndbönd sem voru send stúdentum, rabbað um festið í útvarpi og fjölmiðlum. Litllum körlum í týrólabúningum komið fyrir í helstu byggingum HÍ og tölvuskjáir í eign skólans voru notaðir í auglýsingaskyni. Fastastarfsmenn skrifstofu SHÍ héldu formannafund og kynntu dagskrá rækilega fyrir öllum nemendafélögum svo að sem flestir stúdentar myndu mæta.
*Dagskrá
Risastóru tjaldi var komið fyrir á grasfleti fyrir framan Aðalbyggingu sem var opnað fimmtudaginn 9. október af þýska sendiherranum auk þess sem formaður SHÍ sagði nokkur orð. Því næst var spilað bingó og mjöður drukkinn.
Föstudagurinn 10. október var stærsti dagur hátíðarinnar. Tjaldið opnaði kl. 17:00 og var nemendafélögum beint þangað beint eftir vísindaferðir. Þýsk tónlist var í boði, búningakeppni um þýskasta búninginn, mottukeppni og drykkjukeppni milli deilda. Tjaldið var útúrtroðið og vísa þurfti talsvert mikið af fólki frá.
Laugardagurinn var einnig lagður undir hátíðina í fyrsta skipti. Þá upphófst svokallað Rokk-fest. Hljómsveitir sem stigu á stokk voru eftirfarandi: Agent Fresco, Dikta, Who Knew, Mamút og Mugison.
Stúdentaráðsliðar voru mjög sýnilegir á hátíðinni og voru að afgreiða á öllum afgreiðslustöðum sem var mjög jákvætt.
*Nýjung* LJÓSMYNDASÝNING
Leó Stefánsson og Klængur Gunnarsson áhugaljósmyndarar voru á sveimi á Októberfesti með myndavélar sínar og festu áhugavert myndefni á filmu. Síðan voru þær myndir grysjaðar og afraksturinn prentaður, útbúinn og hengdur upp á Háskólatorgi. Nemendur gátu þannig skoðað ljósmyndasýningu af Októberfesti. Eftir nokkra mánuði voru allar myndirnar færðar upp á skrifstofu SHÍ til skoðunar og athugunar.
HUGSPRETTA
Fulltrúar SHÍ, formaður og framkvæmdastjóri tóku þátt í hugarflæðifundum og skipulagningu Hugsprettu í samvinnu við Innovit og Klak. Verkefnið snérist um að móta tækifæri og vinna að stefnumótun fyrir nýja Íslands. Hugspretta fór fram í Háskólabíói laugardaginn 18. október þar sem margar hugmyndir fæddust.
*Nýjung* STUDENT.IS
Fulltrúar SHÍ unnu með markaðs- og samskiptasviði HÍ og meistaranemum í blaða- og fréttamennsku í netátaki sínu og opnun www.student.is sem var lokaverkefni Díönu Daggar Víglundsdóttir í meistaranámi bl.- og fréttamennsku. Áður en heimasíðan var opnuð höfðu báðar fylkingar Stúdentaráðs, Röskva og Vaka unnið ákveðna hugmynda- og forvinnu sem komst öll til skila.
*Betrumbætur
*Lifandi Stúdentaráðs- fréttir og dagbók Stúdentaráðs sem lýsir í stuttu máli verkefni dagsins og/eða vikunnar.
*Hægt að senda SHÍ erindi, spurningar eða skilaboð í gegnum síðuna.
*Allir afslættir stúdentakorta á einum stað.
*Öll nemendafélög skólans fá tækifæri til þess að hýsa heimasíður sínar á sama stað. Netfangið væri þannig www.student.is/nafn nemendafélags.
*Útgefin Stúdentablöð á netinu sem og annað útgefið efni SHÍ.
*Dagatal stúdenta.
*Allar upplýsingar um þjónustueiningar innan HÍ og sérstaklega starfsemi SHÍ.
*Hægt að sækja um stúdentakort, dælulykil Atlantsolíu og ódýrara rafmagn.
*Stórbættar upplýsingar fyrir erlenda nema við HÍ á ensku.
*Opnun
Heimasíðan var opnuð 9. október með hátíðlegri athöfn á Háskólatorgi. FS gaf stúdentum súkkulaðiköku með skærbleiku kremi og Sverrir Norland, laganemi spilaði og söng.
*Endurvakning*AKADEMÍA
Handbók SHÍ, Akademía, var endurútgefin á starfsárinu. Í henni eru allar helstu upplýsingar um Stúdentaráð, fastastarfsemi þess sem og nauðsynlegar upplýsingar fyrir nemendur Háskóla Íslands.
SÝNILEIKAHERFERÐ SHÍ
Stúdentaráð fór í sýnileikaherferð á haustmánuðum 2008. Markmiðið var að kynna starfsemi ráðsins fyrir sem flestum stúdentum skólans og benda þeim á hina ýmsu þjónustu sem ráðið veitir. Stúdentaráðsliðar gengu í 1. árs námskeið, kynntu Stúdentaráð og gáfu nemendum Akademíu. 
ÍÞRÓTTASKÓLI BARNANNA
Fjölskyldunefnd hélt á starfsárinu íþróttaskóla fyrir börn stúdenta í Íþróttahúsi HÍ við Suðurgötu.
HÚSALEIGUBÆTUR HÆKKAÐAR
Fulltrúar Stúdentaráðs hafa í langan tíma bent yfirvöldum á nauðsyn þess að hækka húsaleigubætur námsmanna. Á starfsárinu ákvað Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, að ráðast í slíkar hækkanir eftir ábendingar m.a. frá fulltrúum stúdenta. Hámarksbætur hækkuðu um tæplega helming og eru nú kringum 20.000 krónur.
STÚDENTAKORT
Skrifstofa SHÍ hefur séð um útgáfu stúdentakortanna á árinu og aldrei hafa jafnmörg kort verið prentuð. Á árinu var settur upp kortalesari á Háskólatorgi.
*Hjálparlína
Hagsmunanefnd sá um að aðstoða þá stúdenta sem einhverra hluta vegna lentu í vandræðum með kortin í gegnum vefpóstinn hjalp@studentakort.is.
*Afslættir
Aldrei hafa betri kjör verið tengd stúdentakortunum. Sem dæmi um fyrirtæki sem veita sérkjör: Háma, Eldsmiðjan, Hressó, Atlantsolía, Borgarleikhús, Orkusalan, Vegamót, Kaffitár, Sporthúsið, Te og Kaffi, Boozt Bar, Iða og Dekkjahöllin. Kjör allra fyrirtækjanna má skoða nánar á www.student.is.
NOM BOM RÁÐSTEFNA
Norrænar og baltneskar stúdentahreyfingar komu til fundar og ráðstefnuhalds hjá SHÍ dagana 31. október – 2. nóvember. Yfirskrift ráðstefnunnar var Bologna-ferlið og hafði hagsmunafulltrúi SHÍ, Yngvi Eiríksson ásamt Bergþóru Snæbjörnsdóttur, formanni alþjóðanefndar og Hrönn Guðmundsdóttur, nefndarmanni alþjóðanefndar veg og vanda af ráðstefnunni f.h. SHÍ.
STÚDENTATÍÐ Í KREPPUHRÍÐ
SHÍ stóð fyrir röð málþinga í kjölfar bankahrunsins á haustdögum 2008. Um var að ræða hádegismálþing á háskólasvæðinu þrjú hádegi í röð. Málþingin voru eftirfarandi:
Miðvikudagur 5. nóvember: Stúdentar og peningar. Málefni LÍN rædd, nýgerðar breytingar á lánasjóðinum, hækkandi stýrivextir og almennt efnahagsástand. Fundarstjóri var Þórunn Elísabet Bogadóttir, Stúdentaráðsliði í Fjármálanefnd.
Framsögufólk:
Gunnar I. Birgisson, stjórnarformaður LÍN og bæjarstjóri Kópavogs.
Lilja Mósesdóttir, doktor í hagfræði og fyrrum stúdent
Pétur Markan, lánasjóðsfulltrúi Stúdentaráðs HÍ
Fimmtudagur 6. nóvember: Stúdentar og atvinna. Mikilvægi Háskóla Íslands og opinni menntun á tímum sem þessum. Hverjar eru atvinnuhorfur nýútskrifaðra stúdenta, hvað með háskólafólk yfir höfuð? Fundarstjóri var María Finnsdóttir, Stúdentaráðsliði í Hagsmunanefnd.
Framsögufólk:
Ásgeir Runólfsson, útskrifaður úr iðnaðarverkfræði og fyrrverandi starfsmaður Landsbankans gamla.
Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður Bandalags háskólamanna (BHM).
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Föstudagur 7. nóvember: Stúdentar og framtíðin
Spáð í spilin um framtíð Íslands og framtíð HÍ. Á hverju þarf að byggja, hvers konar siðfræði og hugsun ætti að hafa í fyrirrúmi? Fundarstjóri var Björg Magnúsdóttir, formaður Stúdentaráðs.
Framsögufólk:
Björg Eva Erlendsdóttir, fjölmiðlakona
Gunnar Ólafur Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar
Sigríður Þorgeirsdóttir, heimspekidósent.
STUÐNINGSYFIRLÝSING FRÁ EVRÓPSKUM KOLLEGUM
Sameiginlegar aðgerðir stúdenta- og námsmannahreyfinga 1. desember fréttust út fyrir landsteina og inn á samevrópskan stúdentahreyfingafund. Í kjölfarið fékk SHÍ senda stuðningsyfirlýsingu frá 13 milljón kollegum í Evrópu. Ályktunin er svohljóðandi og auðsýnilegur heiður:
SUPPORT FOR STUDENTS IN ICELAND
ESU, the European Students’ Union, strongly supports SHÍ, BÍSN and all Icelandic students in their efforts to promote educational and democratic values in the face of extreme financial difficulties in Iceland.
The students of Europe know that education is the true basis for a democratic and socially just society and that free education is a public good with valuable long-term effects. Therefore, ESU calls for the Icelandic government to ensure public funding of higher education and free access for all, and thus to recognise the value of higher education in guiding the Icelandic nation through the current economic crisis.
ESU also reminds the Icelandic government that students are the future leaders and makers of society and should play a leading role in setting the course for the Icelandic nation in times of uncertainty.
*Nýjung* LANDSSAMTÖK STÚDENTA
SHÍ lagðu á árinu grunn að stofnun Landssamtaka stúdenta, LÍS. Áður en fjármálakerfi landsins fór á hvolf hafði fengist vilyrði fyrir ríkisstyrkingu en eftir hrunið var sú fjárhæð dregin til baka. Þó hefur sögulegt samstarf stúdenta- og námsmannahreyfinga orðið að veruleika á árinu og sjaldan hefur verið meira samband á milli sem þarf að viðhalda á komandi árum. Framkvæmdin hefur verið þannig að SHÍ hefur boðið 1-2 fulltrúum allra háskóla landsins til fundar við sig og hefur það framtak gefist vel.
*Nýjung* MINNI UMFERÐ Á HI-NEM PÓSTLISTANN
Stúdentaráð tók til umfjöllunar hi-nem póstsendingar sem ráðið hafði fengið margar kvartanir útaf. Nemendum fannst hreinlega allt of mikið magn af póstsendingum vera sendar út. Stúdentaráð fór í saumana á málinu og þrengdi reglurnar til muna, stúdentum til gleði en nýju reglurnar má lesa hérna:
Frá og með 13. október 2008 hafa nýjar reglur tekið gildi um hi-nem póstlistann sem
Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur umsjón með og ber ábyrgð á.
1. Eingöngu bein skilaboð frá SHÍ skal senda út á hi-nem póstlistann og áskilur ráðið sér þann rétt að hafna öllum þeim skeytum sem það telur ekki eiga erindi til allra stúdenta við HÍ. Í staðinn beinir ráðið auglýsingum og skilaboðum aðila á heimasíðu Stúdentaráðs, www.student.is.
2. Texti skeytanna skal vera á ensku auk íslensku. Öll önnur tungumál eru vel þegin, en þá sem viðbót við þau fyrrnefndu.
FJÁRSJÓÐUR TIL FRAMTÍÐAR
Verkefni unnið í samstarfi við markaðs- og samskiptasvið
*Nýjung* SAMSTARF NÁMSMANNA- OG STÚDENTAHREYFINGA
Stúdentaráð HÍ boðaði til fundar með fulltrúum annarra náms- og stúdentahreyfinga á landinu í kjölfar fjármálahruns haustið 2008. Markmiðið var að sameina baráttumál allra stúdenta- og námsmanna á landinu sem telja um 20.000 einstaklinga.
*Hreyfingar sem sameinuðust SHÍ í baráttunni
Stúdentaráð Háskólans í Reykjavík, Stúdentaráð Kennaraháskóla Íslands, félag stúdenta við Háskólann á Akureyri, Listaháskóli Íslands, Stúdentafélag Háskólans á Hólum, Samband íslenskra námsmanna erlendis, SÍF og HÍF.
*Fundir og ráðgeringar
*Bréf sent til menntamálaráðherra 14. nóvember 2008 með 8 óskum stúdenta á landinu.
*1. desember 2008: dagurinn lagður undir í kynningu verkefnisins og afhjúpun menntavitans.
*Ályktun um LÍN og HÍ.
*Nýjung* MENNTAVITI
Stúdentaráð HÍ ásamt öðrum námsmanna- og stúdentahreyfingum sendi ráðamönnum bréf 14. nóvember 2008 (sem má sjá framar). Í því voru tilteknar 8 sameiginlegar óskir frá þessum stóra hópi námsmanna. Til þess að koma óskum okkur almennilega á framfæri var lagst í byggingu menntavita með 8 hliðum þar sem hver ósk hreyfinganna var skrifuð á eina hlið vitans. Menntavitinn var afhjúpaður 1. desember 2008 við hátíðarathöfn á Austurvelli og var síðan ferjaður á Háskólatorg þar sem nemendur og þjóðin gat skoðað hann. Svala Ragnarsdóttir, útskrifuð úr LHÍ, hannaði vitann og Yngvi Eiríksson, hagsmunafulltrúi og verkfræðistúdent sá um að byggja hann.
*Nýjung* 1. DESEMBER 2008
Stúdentaráð tók snemma þá ákvörðun að halda rækilega upp á 1. desember, hátíðisdag stúdenta. Þó árferðið væri erfitt væri nauðsynlegt að gefast hvergi upp í baráttunni heldur sýna þjóðinni að enn væri kraftur í háskólafólki. Fyrsti hluti dagsins var skipulagður í samráði við markaðs- og samskiptasvið HÍ.
*Dagskrá
-Dagurinn hófst kl. 10:30 í Hátíðarsal Aðalbyggingar þar sem Kristín Ingólfsdóttir, rektor, hélt sannkallaða eldklerksræðu og Halla Ólafsdóttir, íslenskustúdent fór með ljóðið Fánann eftir Pétur Sigurgeirsson biskup. Ókeypis kakó og jazz.
-Stúdentaráð gekk með blómsveig að leiði Jóns Sigurðssonar þar sem Þórunn Arna Kristjánsdóttir söng ljúft agapelló fyrir viðstadda.
-Næst var ferðinni heitið á Austurvöll þar sem aðrar náms- og stúdentahreyfingar biðu SHÍ. Þar las Björg Magnúsdóttir, formaður SHÍ, bréf til ráðamanna og menntavitinn var afhjúpaður.
-Klukkan 12 á hádegi hófst svo gleði á Háskólatorgi. Torgið var smekkfult: Ólafur Ragnar Grímsson hélt stutta tölu, Stúdentaráðsliðar dældu út ókeypis sveppasúpu til stúdenta og hljómsveitin FM Belfast tróð upp. Í fyrsta skipti var dansað á torginu fyrir kvöldmat.
JÓLABALL STÚDENTA OG STARFSFÓLKS HÍ
Það er hefð fyrir því að fjölskyldunefnd SHÍ í samráði við skrifstofu SHÍ skipuleggi jólaball fyrir börn stúdenta og starfsfólks HÍ. Á því varð engin breyting á starfsárinu og bar ballið upp á 29. desember. Torgið var enn á ný smekkfullt. Skrifstofustarfsmenn ákváðu að hafa veitingar í hollari kantinum: buðu upp á epli, mandarínur og svala. Jólasveinar með nammipoka handa börnunum litu inn, dansað var kringum jólatré og yndisleg lög sungin úr kröftugum barna-börkum.
*Nýjung* HJÓLAGRINDUR Á HÁSKÓLATORG
Skrifstofan lagði það fyrir stjórnsýslu HÍ að setja upp almennilegar hjólagrindur fyrir utan Háskólatorg. Bæði til þess að gera nemendum kleift að læsa hjólum sínum þar fyrir utan en einnig að ýta undir umhverfisvænni ferðamáta eins og hjól. Þær koma upp í byrjun febrúar.
SKÓFLUSTUNGA VIÐ SKÓGARVEG
Þann 6. janúar 2009 tók Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, fyrstu skóflustungu að fjölskylduíbúðum við Skógarveg í Reykjavík. Þar verða byggðar upp 80 fjölskylduíbúðir sem hægt verður að flytja inn í við árslok 2009. FS bauð upp á kakó, kökur og flugeldasýningu í tilefni dagsins. 
AÐSTÖÐUMÁL NEMENDAFÉLAGA VIÐ HÍ
Í árslok hóf SHÍ vinnu með nemendafélögum HÍ og stjórnsýslu HÍ við að samræma aðstöður nemendafélaga við skólann. Um er að ræða úttekt og í framhaldinu kröfur sem félögin setja í aðstöðumálum.
RAFRÆNAR KOSNINGAR TIL STÚDENTARÁÐS
Á árinu fór af stað vinna við að kanna möguleikann á rafrænum kosningum til Stúdentaráðs. Fulltrúar SHÍ fóru á nokkra fundi á haustönn með fultrúum RHÍ sem voru spenntir og viljugir í áframhaldandi samstarf og verkefnið. Um rafrænar kosningar var tekist um á Stúdentaráðsfundi. Röskva vildi halda áfram með þá vinnu en Vaka taldi ekki nægan tíma til kosninga til þess. Í kjölfarið var vinnu hætt í bili þar sem lagabreytingu þyrfti til þess að halda rafrænar kosningar og lagabreytingu þarf mikill meirihluti Stúdentaráðsliða að samþykkja. Reikna má með að frekari vinna fari í að útfæra og gera rafrænar kosningar að veruleika á komandi starfsárum þar sem þær gera fleirum kleift að kjósa og eykur þannig á lýðræði.
STÚDENTASJÓÐUR
*Stjórnin samanstendur af Heimi Fannari Hallgrímssyni, Orator, formanni, Bergi Sigurjónssyni, Ökonomíu, varaformaður, Aroni Þór Leifssyni, Politicu, Jóhanni Má Helgasyni og Sigrúnu Antonsdóttur.
Sjóðurinn kom saman nokkrum sinnum og úthlutaði tvisvar sinnum á önn.
GREININGARSJÓÐUR
*Nýjung* SKANNI, LJÓSRITUNARVÉL OG PRENTARI
Stúdentaráð í samvinnu við RHÍ beitti sér fyrir betri tækjabúnaði til ljósritunar, skönnunar og annarrar vinnslu. Allsherjarmaskínu var í kjölfarið komið upp á Háskólatorgi og er von á slíkri vél í fleiri byggingar Háskólans.

